Sameiningin - 01.12.1929, Qupperneq 13
eftir friði fer vaxandi. Deiluefnin og misklíðin, sem hversdags-
lífinu fylgja, verða hverfandi smá, þegar þau eru skoðuð í ljósi
því, er stafar frá Betlehems völlum. En eg hefi sérstakan hóp
fólks i huga. Það eru sorgafbörnin, þeir, sem mist hafa hjart-
fólgna ástvini, eldri eða yngri, og lifa nú jólin með hjörtun full
af söknuði og þrá.
Til allra þeirra, sem bera harm í hjarta, sökum æfisorganna,
vildi eg-sérstaklega stíla þessi fáu orð.
“Sú sitjum viS hljóðir á helgri nótt,
við hjartnæman minningaklið.”
Víðsvegar á bygðu bóli, er of mikið af ys og þys og annriki,
sem á sér stað rétt fyrir jólin, og er að nema á brott og ræna
okkur hinni helgu þýðingu þeirra. Eðlileg tilfinning þroskaðra
og reyndra, er heilög ró og friður, sem streymir til hjartnanna,
orðlaus undrun og gleöi, sem fæðing frelsarans færir hverju jarð-
arbarni. Þögul íhugun guðs eilífu náðar birtist með boðskap
jólanna, hvert sinn er þau ganga i garð.—
Efni kvæðis þess, sem upphafsorðin eru úr, er jólakvæði og
á sérílagi við ástvin, sem farið hefir á burt, elskaöan son foreldra,
sem er fjarverandi, í fyrsta sinn,—um jólin. Á sjálfa jólanóttina
er tómlegt umhverfis þau, og söknuður i hjörtum þeirra, er heima
dvelja, autt sæti við arin heimilisins. — Já, þeir eru margir um
þessi jól, sem sitja í hálfrökkri því, sem sorginni er samfara, marg-
ir er sitja og hlusta á “hjartnæman minningaklið.”
Við fyrstu athugun, virðist sem sorgin sé aldrei þungbærri
en einmitt um jólin. Hugur þinn, syrgjandi systir, eða bróðir,
er fullur af því, sem áður var.
Sorg þín er svo stór. Skarðið, sem höggvið hefir verið i
hópinn þinn, er með öllu óbætanlegt,—engin orð fá lýst tilfinn-
ingum hjárta þíns; orðlaus andvörp, sem 'berast til Guðs, sem veit
hvað þér líður, og heldur vörð um þig. Þú hugsar um óvissa
framtíð þína, um einstígi ófarins æfivegar, sem þig hryllir við.
Og þér finst sem að jólin og jólafögnuðurinn geti ekki að þessu
sinni náS til þín, þar sem þú ert inniluktur í húms'kuggum sorg-
arinar. —
En þú minnist þess, hvernig sólstafir brjótast stundum gegn-
um regnþrungin ský, þegar er að birta til. Þannig hljóma gleði-
hreimar inst í sálu þinni, þar sem þú situr og hugsar um komu
jólanna, mitt í kvíða þínum og sorg.
Hvað er það, sem veldur sælukend sálar þinnar, þegar þú
heyrir bergmál af orSunum:
Jóla-atburðurinn og Jesús Kristur er svarið.