Sameiningin - 01.12.1929, Síða 14
364
“Heims um ból,
helg eru jól?”
Þessi orð eru hljómfögur orð, og slá eld trúar og vonar, enda
í syrgjandi hjarta. Það er sem ný dagrenning ibirtist sjónum þín-
um! Þér skilst betur en nokkru sinni fyr, að Jesú barnið, sem
fæddist í helgri fátækt og yfirlætisleysi, átti sérstakt erindi til
sorgarbarnanna, og allra þeirra, er sátu í fangelsi óblíöra örlaga.
Boðskapur Guðs um fæðingu hans, var fyrst birtur olnbogabörn-
um, fjárhirðunum, er vö'ktu yfir hjörð sinni, mitt í dirnmu og
dapurleik næturinnar. A lífstíö sinni var frelsarinn kunnugur
þjáningum mannlífsins, og eins og skáldið kemst að orði:
“Hann var þeirra athvarf,
sem áttu bágust kjör,
með olnbogabörnunum
var hann helzt í för.”
Jólaiboðskapurinn er vorsins og vonanna boSberi, til þeirra,
er sitja í myrkri og eiga enga von. Hann lætur birta umhverfis
alla þá, er sitja í myrkri mannlífssorganna,—hann er stílaður til
þeirra, sem eru fangar, ofurseldir þungum örlögum. Þessvegna
var sagt í spádómunum um hann, löngum öldum áður en hann
fæddist: “Þeirn, sem í myrkri sátu birtist mikið ljós.”—
Mitt í myrkri sorgar þinnar, rennur fagurt ljós upp fyrir
sjónum þínum. Þú finnur gleði jólanna streyma inn í harmandi
sálu þína. Þótt jólagjafir séu fáar, og kærleiksríkur hugur fárra
samferSamanna stefni til þin, ertu þess þó fullviss, að jólagjöfin
mikla, gleðin, sökum kærleika Guðs, hefir fylt sálu þina unaðs-
legum fögnuði. Frelsarinn kom til að 'blessa sorgina og gera þér
hana bærilega. Sorg þín, og sorg alls mannkynsins, fær á sig nýj-
an blæ,—undurfagran, unaSslegan blæ í ljósi jólaboðskaparins.
Fullvissa sálar þinnar um þaS, að Guði er ant um þig, og
að hann heldur af náð sinni vörS um þig, ummyndar harma þína,
og nú finnur þú, að sorgin er orðin hrósun þín, því að þú ert
sælli en þeir, sem engan harm bera og eru kaldir og harSir—einnig
um jólin. Mitt í hörmum æfidagsins birtist þér ný fegurð og ný
dýrð, áður óþekt sælukend. Þér birtist ný merking orðanna
fögru, sem eru merkisorð jólahátiSarinnar:
“Emmanúel, Guð með oss.”
Hann, sem jólafögnuðurinn er tengdur við, hann sem er
uppspretta allrar sannrar gleði, kom til þess aS bera sorg þína
með þér.
Gleðileg jól, í Jesú nafni!