Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1929, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.12.1929, Blaðsíða 19
309. unnar? Börn eru óÖfús aS læra, að þekkja meira og fleira, aö vaxa, að þroskast, að verða eitthvað stærra, fullkomnara, betra. Barnslundin er hrein, kærleiksrík, bljúg og auðmjúk. Enn frem- ur er hún vongóð, síglöð, bjartsýn, kát, hýr og fjörug. En um fram alt er hún trúuð og treystir bæði guði og mönnum. Því miður treystir hún mönnum oft og einatt um of, en guði aldrei of mikið, auðvitaS. En væri ekki æskilegt að allir ættu þessi einkenni ? Getur nokkur verið sannur maður án þeirra? Hafa þau ekki ávalt fundist, í ríkum mæli, hjá öllum mestu og beztu mönnum heims- ins ? Já, Jesús elskaði börnin. Er ekki von að þeirn þyki vænt um hann? Er ekki eðlilegt að þau syngi með gleði og ánægju: “Ó, Jesú, bróðir bezti og barnavinur nresti, æ, breið þú blessun þína á barnæskuna mina. Það ætíð sé mín iðja, að elska þig og biðja, þin lífsins orð að læra og lofgjörS þér að færa. Með blíðum barnarómi mitt bænakvak svo hljómi: þitt gott barn gef eg veri og góðan ávöxt beri.” ■Jesils er cnnþá að blessa< börnin! Kæru vinir! Verum altaf Ibörn. Bætum við oss beztu ein- kennum þess aldursskeiðs, sem vér erum á, en töpum aldrei barns- lundinni. Gleðjum oss með 'börnunum á þessari hátíð hátíðanna. GuS gefi vður öllum gleðileg jól. Eilíf líf. JÓLAVfSA. Jólum mínum uni, eg enn— og þótt stoliS hafi hæstum guöi heimskir menn: lief eg til þess rökin tvenn, aS á sælum sanni er enginn vafi /. Hallgr.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.