Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.12.1929, Qupperneq 21

Sameiningin - 01.12.1929, Qupperneq 21
371 Færi ekki vel á því aS vér notuðum þessa jólatíiS til aS athuga nytsemdar-frækornin, sem vér getum veitt líf? GuS gefi öllum heimi gleðileg jól, nytsemdar jól, athugunar jól, lífgefandi jól, samhygSarjól meS frækornunum, sem eiga aS spretta. Jólatréið í skóluhúsinu Eg var sex ára gamall. Eg hafSi heyrt getiö um jólatré, en aldrei séS þau. En um þaS var eg ekki í neinum efa, aS þau væru þaS yndis- legasta sem til væri. Eg hafSi ekki neitt um þaS hugsaö, hvaöa líkur væru til þess aS eg fengi aö sjá þau. Þau virtust tilheyra heimi æfin- < týranna, en ekki því, sem líklegt er aS verSa á vegi manns sjálfs. En svo fór þaö aö kvisast á sunnudagaskólanum, sem haldinn var í gamla skólahúsinu á GarSar, aS í ráSi væri aö liafa jólatré fyrir skólann viö jólaguösþjónustuna i skólahúsinu. Enn var ekki komin kirkja í bygðinni, og voru því guSsþjónustur og aðrir mann- fundir í skólahúsinu. ÞaS var nokkrum vikum fyrir jól, aö fyrst var nefnt tréið, en úr þvi snerist hugur barnanna um þaS látlaust hvernig tréiS yröi útlítandi og hvort þau myndu verSa svo heppin aö fá einhverja gjöf á trénu. Ekki var laust viS aö hvíslast væri á um þetta, ef augu kennarans ekki hvíldu á manni altaf í bekknum, og hvar sem börn eSa unglingar hittust varS' umtalsefniS jólatréiS og síSustu fréttir eöa tilgátur í sambandi viS þaS. Einhver af þeim, sem bezt var aö sér gat lagt til þann fróSleik að vanalega væru jólatré af sígrænni trjátegund, sem ekki breyttu neitt skrúða sínum i vetrarkuldanum. Slik tré hafSi ekkert okkar séS, þvi öll tré í okkar nágrenni feldu lauf að haustinu og stóSu eyðileg og ber upp úr snjónum á vetrin. Grænt tré um hávetur var því nógu furSulegt, þó ekki væri jólatré. En þegar þetta fór saman varS það tvöfalt undur. Væri þaS hugsanlegt aS svona dásamlegt tré fengist fyrir jólasamkomuna okkar? Og svo voru meira og minna glöggar lýsingar á því hvernig svona tré væri prýtt með kertaljósum, stjörnum og öSru skrauti. Imyndunarafl okkar ibarnanna hafSi nú nóg verkefni og í vöku og svefni var víst dreymt af flestum um tréiS og útlit þess og hvaS þaS mundi færa okkur. Svo bættist þaS viö aö viö börnin áttum aS syngja jólasálma viS' tréiS og hera fram jólavers, sem okkur voru kend. Þetta var okkur líka alveg nýtt og jók á æfintýriS, sem var í vændum. Á hverjum sunnudegi var veriS aS æfa þetta svo alt færi nú sem bezt fram viS jólatréiS. Ekki var neitt hljóSfæri til aS spila undir, en tónkvísl haföi sá er sönginn leiddi. Man eg aS mér fanst þaS mjög furöulegt verk- færi, og dáSist mjög aö þeim, sem meS þaS kynni aS fara. Æjfin- lega þegar viS börnin lékum slíka æfingu, eins og börnum er títt, þá var tilkomumesta hlutverkiS aS standa meS eitthvaS sem átti aS vera

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.