Fréttablaðið - 12.03.2011, Blaðsíða 10
12. mars 2011 LAUGARDAGUR10
GENGIÐ 11.03.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
217,2387
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
116,26 116,54
188,95 188,49
160,83 161,28
21,56 21,623
20,701 20,762
18,248 18,301
1,401 1,4051
182,52 183,06
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
Styrkir úr Forvarnasjóði 2011
Lýðheilsustöð auglýsir eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði
Tilgangur sjóðsins er að stuðla að forvörnum á sviði áfengis- og vímuvarna
og eru styrkir veittir til verkefna eða afmarkaðra rannsókna.
Áhersla er lögð á að verkefnin séu samstarfsverkefni og að þau tengist börnum
og ungu fólki í eða utan skóla. Auk umsókna til áfengis- og vímuvarna er unnt að
s kja um styrki fyrir verkefni til heilsue ingar og lýðheilsu.
Velferðarráðherra úthlutar úr sjóðnum að fengnum tillögum áfengis- og vímu-
varnaráðs sem metur umsóknirnar í samstar við Lýðheilsustöð. Áskilinn er réttur
til að senda umsóknir til umfjöllunar fagaðila, óska eftir nánari upplýsingum um
verkefni, framkvæmdaaðila og fjármögnun. Einnig áskilja styrkveitendur sér rétt til
að ákveða að styrkir verði greiddir út í samræmi við framvindu hvers verkefnis.
Sé sótt um styrk til framhaldsverkefna þarf framvinduskýrsla að liggja fyrir.
Mikilvægt er að í umsókninni sé gerð grein fyrir því hvernig verkefnið verður metið
og jafnframt að gert sé grein fyrir kynjaáhrifum.
Skilyrði fyrir rannsóknastyrkjum til gagnaö unar er að Lýðheilsustöð ha aðgang
að ópersónugreinanlegum frumgögnum og nauðsynlegum stoðupplýsingum ári
eftir að gagnasöfnun lýkur. Í samvinnu við styrkþega getur Lýðheilsustöð einnig
veitt þriðja aðila aðgang að gögnunum.
Umsóknarfrestur er til og með 3. apríl 2011 og skal sótt um á eyðublöðum á vef
Lýðheilsustöðvar, www.lydheilsustod.is/lydheilsustod/forvarnasjodur.
Styrkir, sem veittir eru á árinu, skulu sóttir fyrir 31.12 2011.
Nánari upplýsingar fást í síma 5 800 900, johann@lydheilsustod.is eða á vef Lýðheilsustöðvar.
Umsóknum skal skilað rafrænt á netfangið johann@lydheilsustod.is
Sumarúthlutun 2011
Ekki gleyma þér!18.
MARS
Efling-stéttarfélag, Sætúni 1, 105 Reykjavík, sími 510 7500, fax 510 7501, efling@efling.is, www.efling.is
Síðasti skiladagur
umsókna er
18. mars 2011
LÍBÍA Utanríkisráðherrar átta
helstu iðnríkja heims ætla að funda
á mánudag og þriðjudag um borg-
arastyrjöldina í Líbíu. Varnarmála-
ráðherrar Atlantshafsbandalagsins
(NATO) náðu ekki samkomulagi
um aðgerðir gegn einræðisstjórn
Múammars Gaddafís og stuðnings-
mönnum hans síðla í vikunni.
Varnarmálaráðherrar Breta
og Frakka eru þeir einu sem hafa
talað fyrir því bæði á fundum
aðildarríkja NATO og Evrópusam-
bandsins í vikunni að beita hörku
gegn Gaddafí og stuðningsherjum
hans. Fulltrúar landanna hafa lagt
drög að tillögu sem leggja á fyrir
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
og felur í sér að flugbann verði sett
yfir Líbíu. Tillagan hefur ekki hlot-
ið samþykki Rússa, Kínverja, Þjóð-
verja og Ítala, sem vilja fara hægar
í sakirnar, að sögn AFP-fréttastof-
unnar. Fulltrúar þjóðanna hvetja
Gaddafí til að stíga af valdastóli
og vilja taka upp viðræður við upp-
reisnarmenn.
Stjórnarher Gaddafís sótti í sig
veðrið þegar líða tók á vikuna og
hrakti uppreisnarmenn á brott frá
hafnarborginni Ras Lanuf í norður-
hluta landsins. Saíf al-Islam Gad-
dafí, sonur einræðisherrans, sagði
í sjónvarpsávarpi í gær stjórnar-
herinn ekki ætla að gefast upp fyrir
uppreisnarmönnum.
„Þetta er okkar land. Við ætlum
að deyja hér,“ sagði hann og þver-
tók fyrir að landar sínir myndu
fagna því ef herlið NATO eða ann-
arra bandalagsríkja kæmi til lands-
ins.
David Cameron, forsætisráð-
herra Bretlands, brást reiður við
andstöðu vestrænna ríkja við því að
beita hervaldi gegn Gaddafí í ræðu
sinni um málið í Brussel í Belgíu í
gær. - jab
Helstu ríki heims geta ekki komið sér saman um aðgerðir til að velta Gaddafí einræðisherra af valdastóli:
Forsætisráðherra Breta vill hertar aðgerðir
STJÓRNARHERMENN Hermenn Gaddafís
við rústir mosku í bænum Zawía, sem
þeir náðu á sitt vald í vikunni.
FRÉTTABLAÐIÐ/AP
EVRÓPUMÁL Össur Skarphéðins-
son, utanríkisráðherra, segir að
nýleg reglugerðarbreyting á sam-
eiginlegri sjávarútvegsstefnu Evr-
ópusambandsins (ESB) þar sem
aðildarríkjum er gert að stýra
staðbundnum stofnum innan eigin
lögsögu, styrki röksemdir Íslands
í aðildarviðræðunum við sam-
bandið.
Eins og kom fram í Frétta-
blaðinu í gær, kveður nýtt ákvæði
í sjöttu grein reglugerðarinnar,
frá janúar síðastliðnum, á um að
aðildarríki geti ákvarðað einhliða
hámarksafla úr tilteknum stofn-
um sem eru alfarið nýttir af við-
komandi ríki, í stað þess að tekin
sé sameiginleg ákvörðun í ráð-
herraráðinu eins og átt hefur við
hingað til.
„Það er ljóst að þetta er sterkt
fordæmi,“ segir Össur í samtali
við Fréttablaðið. „Hins vegar vil
ég ekki vekja upp of miklar vænt-
ingar vegna þessa eins, því að það
eru önnur sterk rök fyrir því að
rétt væri af ESB að fallast á hug-
myndir okkar, sem hafa verið mjög
eðlisskyldar þessari nýju reglu-
gerð.“
Össur bætir því við að þessi
breyting sé í samræmi við nýja
hugsun innan ESB um að umsjón
með staðbundnum stofnum sé flutt
nær upprunanum.
„Samkvæmt því er valdið flutt
til sérfræðinga á staðnum þar sem
fiskurinn er og til fyrirtækjanna
sem afla úr stofnunum og vinna
úr þeim. Þetta er í anda þess sem
við höfum haldið fram, að þeir sem
hafi alla sína afkomu af auðlind
séu best til þess fallnir að sjá um
og stýra nytjum á henni.“
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, segir í
samtali við Fréttablaðið að þessi
breyting hafi ekki áhrif á afstöðu
sambandsins til aðildar Íslands að
ESB.
„Þessi breyting nær yfir mjög
takmarkaðan fjölda fiskistofna,“
segir Friðrik. Hann vekur athygli
á því að reglugerðin nái til stofna
þar sem engin vísindaráðgjöf sé
til, sem séu ekki stofnar sem ein-
hverju skipti hér við land.
„Þetta er engin grundvallar-
breyting varðandi það að þær
ákvarðanir sem máli skipta um
fiskveiðistjórnunina eru áfram hjá
Evrópusambandinu.“
thorgils@frettabladid.is
brjann@frettabladid.is
Breytingin er
Íslandi í hag
Utanríkisráðherra segir reglugerðarbreytingu ESB
um staðbundna stjórn fiskveiða setja sterkt fordæmi
og styrkja rök Íslands. Útvegsmenn segja nýja reglu-
gerð ekki breyta miklu og afstaða þeirra sé óbreytt.
FISKVEIÐAR Utanríkisráðherra segir nýja reglugerð ESB styrkja málstað Íslands í
sjávarútvegsmálum. FRÉTTABLAÐIÐ/AFP
Þetta er engin
grundvallarbreyting
varðandi það að þær ákvarð-
anir sem máli skipta um
fiskveiðistjórnunina eru áfram
hjá Evrópusambandinu.
FRIÐRIK J. ARNGRÍMSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI LÍÚ