Fréttablaðið - 12.03.2011, Blaðsíða 96
DREIFING: dreifing@posthusid.is
EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060
VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR
Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja
Mest lesið
FRÉTTIR AF FÓLKI
Lærir bjórfræðin
Stefán Pálsson, höfundur
spurninga í skemmtiþættinum Ha?
á Skjá einum, lærir nú að verða
kennari. Þó enginn venjulegur
kennari, þar sem hann er nú í
stífri æfingakennslu í Bjórskóla
Ölgerðarinnar. Vonast hann til að
vera farinn að kenna Íslendingum
að drekka bjór innan fáeinna vikna.
Sjálfur er hann mikill áhugamaður
um mjöðinn og nýtir flest tækifæri
sem gefast til að ausa úr
viskubrunninum. Það
má því velta fyrir sér
hvort Sóli Hólm og
Edda Björg í Ha? fái
strembnar spurningar
um humla og
ger í næstu
þáttum, en
nýlega var
ákveðið
að fjölga
þáttunum úr
12 í 15.
Hringdu í síma
ef blaðið berst ekki
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meiri Vísir.
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
nýtt
1 Alveg viss um að skólinn
myndi hrynja
2 Um 300 lík við
strandlengjuna
3 Íslendingur í Japan býr sig
undir tsunami
4 Tíu metra flóðbylgja skall á
hafnarbæ
5 Húsið byrjaði að vagga
Í boði Páls Óskars
Söngstjarnan Páll Óskar Hjálmtýs-
son verður með tónleika á Ísafirði
í kvöld á árvissu grímuballi Ísfólks-
ins, stuðningsfólks Körfuknattleiks-
félags Ísafjarðar. Páll ætlar ekki að
slá slöku við heldur bjóða krökkum
og foreldrum þeirra upp á ókeypis
skemmtun í Krúsinni um miðjan
dag, taka sína helstu slagara, gefa
sér tíma til að ræða við aðdáendur
og gefa eiginhandaráritanir. Söngv-
arinn hefur heldur betur komið til
móts við aðdáendur sína í vikunni.
Á miðvikudag aflýsti hann á síðustu
stundu stóru unglingaballi sem
hann ætlaði að halda á
skemmtistaðnum NASA.
Þess í stað bauð hann
upp á endurgreiðslu og
áritanir á staðnum, sem
bættu mörgum
ballmissinn.
- afb, jab