Fréttablaðið - 12.03.2011, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 12.03.2011, Blaðsíða 28
12. mars 2011 LAUGARDAGUR28 H austið 2006 setti British Avland Bank upp netbankaútibú hér á landi og kall- aði Britsave. Hvorki íslenskar né bresk- ar eftirlitsstofnanir gerðu athuga- semdir við starfsemina þrátt fyrir að búa yfir upplýsingum sem sýndu að bakhjarl netbankans stóð völt- um fótum. Britsave bauð upp á mun betri ávöxtun en þekktist hérlendis. Ófáir Íslendingar hlupu til og fluttu sparnað sinn úr íslensku bönkunum yfir í breska netbankann. Í byrjun árs 2008 tók að hrikta í fjármálakerfi heimsins og beindust augu margra að Bretlandi. Fjár- málasérfræðingar höfðu áhyggjur af ofvexti breska bankakerfisins og vöruðu stjórnmálamenn ítrek- að við hættunum sem af því gætu stafað. Gekk þetta svo langt að á fundi forsætisráðherra Íslands og Bretlands í apríl sama ár lagði sá fyrrnefndi til að Bretar hugleiddu aðstoð frá AGS. Um líkt leyti birt- ist breski seðlabankastjórinn í símaviðtali á Stöð 2 þar sem hann fullvissaði Íslendinga um að ef illa færi myndi breski innstæðutrygg- ingasjóðurinn ábyrgjast Britsave- reikningana. „En jafnvel þó svo færi, breska ríkið verandi skuld- laust, væri það ekki of stór biti fyrir ríkið að kyngja, ef það ákvæði að kyngja honum.“ Svartur október Um haustið skall alþjóðlega fjár- málakreppan á. British Avland Bank var einn þeirra banka sem riðuðu til falls í kjölfar gjald- þrots Lehman Brothers í New York. Breski seðlabankastjórinn mætti nú í viðtal á BBC og fullyrti, þvert á fyrri orð, að bresk stjórn- völd myndu „ekki ábyrgjast skuld- ir óreiðumanna“. Þótt óljóst væri hvað fólst í þeim orðum vöktu þau ugg meðal íslenskra ráðamanna og í býtið daginn eftir krafði íslenski fjármálaráðherrann kollega sinn í Lundúnum um skýr svör. Þegar þau fengust ekki greip íslenska ríkis- stjórnin til þeirra ráða að frysta allar eigur Britsave á Íslandi með sérstakri lagasetningu. Sú aðgerð dugði hins vegar skammt því í ljós kom að allt fé netbankans var á bak og burt. Síðar um daginn bárust svo fréttir af því að breska fjármálaeft- irlitið hefði yfirtekið rekstur móð- urbankans. British Avland var fall- inn og íslenskur almenningur stóð uppi með tóma innlánsreikninga. Viðbrögð fólks lýstu reiði og von- leysi. Margir höfðu tapað ævisparn- aðinum, aðrir aleigunni. Um kvöldið safnaðist hópur fólks framan við breska sendiráðið í Reykjavík. Rúður voru brotnar og bál var kveikt. Ólætin stóðu langt fram eftir nóttu og yfir tuttugu ein- staklingar gistu fangageymslur. Sérsveit lögreglu náði við illan leik að forða breska sendiherran- um, fjölskyldu hans og starfsfólki sendiráðsins, út bakdyramegin í brynvarinn bíl. Bretahatur Ekkert lát var á mótmælum næstu vikur og óeirðalögregla tók upp fasta vakt við sendiráðið. Það kom þó ekki í veg fyrir að kveikt væri í húsinu um miðjan nóvem- ber. Fyrirhuguðum Íslandsheim- sóknum hljómsveitanna Travis og Belle & Sebastian var aflýst, hundruð manna sögðu sig úr Manc- hester United-, Arsenal- og Liver- pool-klúbbunum, og í Reykjanesbæ komu unglingar saman og brenndu Harry Potter-bækur á tröppum ráð- hússins. Fréttatímarnir yfirfylltust af viðtölum við fokreiða landa: Kona á Selfossi hafði tapað andvirði ein- býlishúss, hjón á Hofsósi misstu sjóðinn sem þau höfðu safnað í til elliáranna, maður í Kópavogi tapaði 160 milljónum króna. Ýmis félaga- samtök og stéttarfélög áttu einnig um sárt að binda. Þannig tapaði Félag langveikra barna öllum fram- lögum sem safnast höfðu í nýlið- inni landssöfnun, og Rauði kross- inn afrakstri átaksins Göngum til góðs. Með sjónvarpsviðtölum við reiða Íslendinga birtust svipmyndir af bankastjórunum bresku og hug- myndafræðingunum á bakvið Brit- save, jakkafataklæddum á ferð um fjármálahverfi Lundúnaborgar. Náin tengsl Ekki minnkaði reiði landsmanna þegar fjölmiðlar tóku að graf- ast fyrir um fortíð bankans. Í ljós kom að British Avland-bankinn hafði lengst af verið ríkisbanki en í umdeildri einkavæðingu í byrjun aldar verið seldur hópi kaupsýslu- manna með vafasama fortíð í Rúss- landi Jeltsíns. Tíunduð voru tengsl hópsins við ráðherra í bresku rík- isstjórninni og staðfest að varafor- maður stjórnar bankans var einka- vinur þáverandi forsætisráðherra Bretlands. Sá síðarnefndi var nú orðinn seðlabankastjóri, sá hinn sami og hafði fullvissað íslenskan almenning um ábyrgð breskra yfir- valda á Britsave. Þá vakti það enn fremur gremju er fréttist að ráðu- neytisstjóri í breska fjármálaráðu- neytinu hafði selt hlutabréf sín í BAB, fyrir tæplega eina milljón punda, tveimur vikum fyrir fall bankans, eftir að hafa setið neyð- arfundi um fallvaltleika Britsave- reikninganna. Með góðu eða illu Bretahatrið tók þó fyrst við sér þegar breska ríkisstjórnin neitaði að gangast í ábyrgð fyrir British Avland þegar í stað og greiða fyrir tjón viðskiptavina hans á Íslandi, en tapið var talið hlaupa á eitt til tvö hundruð milljörðum íslenskra króna. Einkum lagð- ist þessi afstaða illa í land- ann í ljósi þess að nokkrum vikum áður hafði breska þingið samþykkt neyðarlög sem tryggðu allar innstæð- ur í þeim útibúum breskra banka sem starfrækt voru á Bretlandseyjum. Að loknum löngum fundi ákvað ríkisstjórn Íslands að bæta þeim landsmönn- um sem áttu fé á Britsave- reikningunum tapið með sérstökum framlögum úr ríkissjóði. Ákvörðunin var umdeild. Margir sökuðu Britsave-reikningshafa um grægði, og setningar eins og „þetta fólk getur sjálfu sér um kennt“ og „af hverju á öll þjóðin að blæða fyrir græðgi örfárra?“ flugu um netheima. Málið fékkst þó samþykkt á Alþingi með naumum meiri- hluta. Við umræðurnar lét fjármálaráðherra þau orð falla að vissu- lega væri málið „ömur- legt í heild sinni“ en fleira yrði að gera en gott þætti. Hann full- vissaði þjóðina um að hér væri aðeins um tímabundin útgjöld að ræða. „Þessa peninga munum við sækja til Bretlands, með góðu eða illu!“ Britsave II Í byrjun árs 2009 voru fyrstu samningafund- irnir í Britsave-deil- unni haldnir í Reykja- vík. Bretar höfðu þá viðurkennt ábyrgð sína á innstæðunum eftir þrýsting frá Evrópu- sambandinu og undir- ritað viljayfirlýsingu (Britsave I) þess efnis. Deilan hafði þá vakið talsverða athygli utan landanna tveggja, ekki síst hin óbilgjarna afstaða Breta, þar sem Britsave-skuldin var einungis brot af þarlendri þjóðar- framleiðslu. Breska stjórnin taldi málið þó mikilvægt því það hefði „ótvírætt fordæmisgildi“. Snemmsumars lágu samnings- drög fyrir og voru skömmu síðar lögð fyrir breska þingið en mættu þar mikilli andstöðu. Harðast- ir gegn samningunum voru sam- flokksmenn forsætisráðherrans fyrrverandi sem nú gegndi emb- ætti seðlabankastjóra. Umræður um málið urðu hatrammar og stóðu með hléum allt til áramóta þegar Britsave II var loks samþykkt í breska þinginu með stuðningi nokk- urra þingmanna úr minnihlutanum. Samkvæmt samningunum skuld- bundu Bretar sig til að láta þrotabú British Avland-bankans ganga upp í Britsave-skuld þeirra við Íslend- inga og greiða síðan eftirstöðvarnar á tíu árum. Óvænt útspil Hin langa saga málsins tók hins- vegar óvæntan snúning þegar Eng- landsdrottning beitti fornu laga- ákvæði, sem aðeins einu sinni áður hafði verið virkjað í breskri sögu, og vísaði málinu í þjóðarat- kvæði. Megin- rök drottning- ar voru þau að „gjá hefði myndast milli þings og þjóðar“, en deilan brann heitt á breskum almenn- ingi sem leit á Brit- save-málið sem próf- stein á það að græðgi fjárglæframanna nyti ekki ábyrgðar ríkis- sjóðs. Vikurnar á undan höfðu nýstofnuð samtök áhugafólks, ItDepends, safnað yfir 30 millj- ón undirskriftum sem skoruðu á drottningu að synja lögunum staðfest- ingar. Til að gera langa sögu stutta felldi breska þjóðin málið í þjóðar- atkvæðagreiðslu með miklum meirihluta. Viðbrögðin á Íslandi létu ekki á sér standa. Ný tegund mótmæla varð til þess að flug- félögin Icelandair og Iceland Express lögðu endanlega niður flug til Bretlandseyja, og stuttu síðar varð Framhalds- skólinn á Húsavík fyrst- ur skóla til að leggja alfarið niður kennslu í ensku. Sjálfhætt var hjá íslensku leikmönn- unum í enska boltanum og þeir komu saman heim með Goðafossi í lok janúar. Þá var hárgreiðslu- kona úr Grindavík hætt komin er hún kveikti í sér á Trafalgar-torgi í miðborg Lundúna. Britsave III Við tók ný samningalota sem, vegna þingkosninga og stjórnarskipta í Bretlandi, lauk ekki fyrr en síðla hausts 2010. Skipuð hafði verið ný samninganefnd fyrir Íslands hönd, undir forystu bandaríska samn- ingamannsins Lee Bullhawk. Bret- ar mættu einnig með nýskipað lið. Fyrir nefnd þeirra fór Daninn Jes- per Poulsen, sem samkvæmt bresk- um dagblöðum var talinn „þekkja vel hugarfar hinnar óbilgjörnu norrænu eyjþjóðar“. Ráðning hans lagðist illa í marga Íslendinga og samfara nýtilkomnu Bretahatri gekk hið fræga Danahatur í endur- nýjun lífdaga. Nýr samningur í Britsave-málinu lá fyrir í lok nóvember. Ekki voru allir sannfærðir um ágæti hans. Í Silfri Egils og fleiri þáttum fullviss- uðu íslensku samningamennirnir þjóð sína um að lengra yrði ekki komist gagnvart þessari „þrjósku og nísku eyþjóð“ á meðan sömu menn voru í símatímum útvarps- stöðva sakaðir um landráð. Í Bret- landi risu deilurnar þó öllu hærra. Þarlendir sérfræðingar í Evrópu- rétti, sem og lagaprófessorar við háskólana í Oxford og Cambridge, fullyrtu að Bretum bæri „engin lagaleg skylda til að bæta það tjón sem breskur einkabanki veldur í öðrum löndum“, töluðu um „prin- sippmál“ og vildu láta reyna á „dómstólaleiðina“. Aðrir töldu þó farsælla að leysa málið með samn- ingum, ella gæti það endað fyrir Evrópudómstólnum þar sem Bret- ar ættu síður von á góðu, í ljósi þess hvernig deilan hófst. Eftir stutta en snarpa umræðu í breska þinginu var Britsave III samþykkt með traustum meiri- hluta atkvæða. „Það er gott að fá þetta mál út úr heiminum,“ sagði stjórnarþingmaður í viðtali við Sky- fréttastöðina. Þjóðin sem löggjafi Elísabet önnur Englandsdrottning var þó ekki á sama máli. Eftir að hafa tekið sér tveggja sólarhringa umhugsunarfrest ákvað hún að vísa hinum nýju samningum til þjóðar- innar, rétt eins og þeim fyrri. „Það grundvallaratriði hlýtur því að ráða niðurstöðu krúnunnar, hvað sem líður kostum hinna nýju samninga, að þjóðin fór með löggjafarvald í Britsave-málinu og ekki hefur tek- ist að skapa víðtæka sátt um að þingið ráði nú eitt niðurstöðu máls- ins.“ Tilkynningu Bretadrottningar var sjónvarpað beint á Íslandi og óhætt er að segja að landið hafi nötrað í kjölfarið. Forsætisráð- herra hvatti fólk til stillingar en þrátt fyrir það söfnuðust um það bil tvö þúsund manns við breska sendiráðið og létu ófriðlega. Bretah- atrið náði nýjum hæðum. Fremstir í flokki fóru Evrópuandstæðingar, anarkistar, ungir andkapítalistar og nýstofnaður flokkur þjóðernis- sinnaðra hægrimanna, Heimavörn. Var þess krafist að Íslendingar slitu stjórnmálasambandi við Breta þegar í stað og sendiráðinu í Lund- únum yrði lokað. Á stærstu gatnamótum höfuð- borgarinnar birtust níðmyndir af Englandsdrottningu sem og and- samkynhneigð slagorð um leikar- ann og sjónvarpsmanninn Stephen Fry. Þá voru tvær naktar brúður sem hengdar höfðu verið í göngu- brú yfir Miklubraut látn- ar óáreittar af lögreglu. Brúðurnar, sem héngu í hengingar-ól og skörtuðu áberandi kynfærum, sýndu andlit Karls Bretaprins og Camillu konu hans. Eftir að rúður höfðu verið brotnar á skemmtistaðnum Players og fleiri boltabörum ákvað Stöð 2 Sport síðan að leggja niður útsendingar frá leikj- um í enska boltanum. RÚV brást við með því að fresta frekari sýningum á bresku sjónvarpsefni, svo sem Skúla skelfi, Taggart og Dauðir rísa. Amman og dópið Nú er aðeins tæpur mánuður þar til Bretar ganga að kjör- borðinu. Margir Íslending- ar láta sér fátt um finnast á meðan aðrir fylgjast með kosningabaráttunni í gegnum breskar sjónvarpsstöðvar og netsíður, en flestir íslensk- ir fjölmiðlar hafa nú úthýst öllum fréttum frá Bretlandi. Sjónarmiðin sem heyrast eru söm og áður. Andstæðingar samninganna fullyrða að það sé „ekkert í evrópskri löggjöf sem skipar okkur að borga Britsave“ á meðan fylgjend- ur þeirra vilja „sýna Íslend- ingum sanngirni“. Í vikunni sem leið vakti sjónvarpskonan Urmee Dhai nokkra athygli er hún lýsti því yfir í þætti sínum að „Bretar verði þó að horfast í augu við þá staðreynd að hér fór breskur banki ráns- hendi um íslensk heimili“. Sjónar- mið hennar þótti þó missa vægi er breskir miðlar greindu frá vinskap hennar við íslensku forsetafrúna. Hinn kunni dálkahöfundur Guardi- an, Arthur Donaly, orðaði andstæð sjónarmið er hann þvertók fyrir að Britsave-málið væri hefðbund- in milliríkjadeila. „Málið er miklu stærra en svo. Það snýst um þá ein- földu kröfu að almenningur sé ekki látinn blæða fyrir asnaskap gráð- ugra bankamanna. Af hverju ætti amma gamla að greiða fíkniefna- skuld barnabarnsins?“ Vöruflutn- ingabílstjóri á Bíldudal, sem tapað hafði „heilsunni og fjölskyldunni“ á Britsave, brást við þeim orðum með því að brenna breska fánann í garð- inum hjá sér, í fimmtánda sinn. Nýjustu skoðanakannanir sýna að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn- ar geta farið á hvorn veginn sem er. Kosið verður 9. apríl. Ekkert lát var á mótmælum næstu vikur og óeirðalög- regla tók upp fasta vakt við sendiráðið. Það kom þó ekki í veg fyr- ir að kveikt væri í húsinu um miðjan nóvember. BRITSAVE Hallgrímur Helgason rekur hér sögu breska netbankans sem gerði marga Ís- lendinga ríka en síðan reiða og loks brjálaða, nú þegar rétt um fjórar vikur eru þar til Bretar ganga að kjörborðinu, þar sem örlög Britsave-málsins munu ráðast, eftir að Elísabet II Englandsdrottning synjaði lögunum staðfestingar. Hallgrímur Helgason er rithöfundur og myndlistarmaður. Hann hefur reglulega skrifað pistla í Frétta- blaðið. Síðasta skáldsaga hans „10 ráð til að hætta að drepa fólk og byrja að vaska upp“ kom út 2008. Hallgrímur vinnur nú að nýrri skáldsögu sem væntanleg er með haustinu. Þá er kvikmyndin Rokland, byggð á sam- nefndri skáldsögu frá 2005, til sýnis í kvikmyndahúsum. Rithöfundur og myndlistarmaður
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.