Fréttablaðið - 12.03.2011, Blaðsíða 28
12. mars 2011 LAUGARDAGUR28
H
austið 2006 setti
British Avland Bank
upp netbankaútibú
hér á landi og kall-
aði Britsave. Hvorki
íslenskar né bresk-
ar eftirlitsstofnanir gerðu athuga-
semdir við starfsemina þrátt fyrir
að búa yfir upplýsingum sem sýndu
að bakhjarl netbankans stóð völt-
um fótum. Britsave bauð upp á mun
betri ávöxtun en þekktist hérlendis.
Ófáir Íslendingar hlupu til og fluttu
sparnað sinn úr íslensku bönkunum
yfir í breska netbankann.
Í byrjun árs 2008 tók að hrikta í
fjármálakerfi heimsins og beindust
augu margra að Bretlandi. Fjár-
málasérfræðingar höfðu áhyggjur
af ofvexti breska bankakerfisins
og vöruðu stjórnmálamenn ítrek-
að við hættunum sem af því gætu
stafað. Gekk þetta svo langt að á
fundi forsætisráðherra Íslands og
Bretlands í apríl sama ár lagði sá
fyrrnefndi til að Bretar hugleiddu
aðstoð frá AGS. Um líkt leyti birt-
ist breski seðlabankastjórinn í
símaviðtali á Stöð 2 þar sem hann
fullvissaði Íslendinga um að ef illa
færi myndi breski innstæðutrygg-
ingasjóðurinn ábyrgjast Britsave-
reikningana. „En jafnvel þó svo
færi, breska ríkið verandi skuld-
laust, væri það ekki of stór biti fyrir
ríkið að kyngja, ef það ákvæði að
kyngja honum.“
Svartur október
Um haustið skall alþjóðlega fjár-
málakreppan á. British Avland
Bank var einn þeirra banka sem
riðuðu til falls í kjölfar gjald-
þrots Lehman Brothers í New
York. Breski seðlabankastjórinn
mætti nú í viðtal á BBC og fullyrti,
þvert á fyrri orð, að bresk stjórn-
völd myndu „ekki ábyrgjast skuld-
ir óreiðumanna“. Þótt óljóst væri
hvað fólst í þeim orðum vöktu þau
ugg meðal íslenskra ráðamanna og
í býtið daginn eftir krafði íslenski
fjármálaráðherrann kollega sinn í
Lundúnum um skýr svör. Þegar þau
fengust ekki greip íslenska ríkis-
stjórnin til þeirra ráða að frysta
allar eigur Britsave á Íslandi með
sérstakri lagasetningu. Sú aðgerð
dugði hins vegar skammt því í ljós
kom að allt fé netbankans var á bak
og burt. Síðar um daginn bárust svo
fréttir af því að breska fjármálaeft-
irlitið hefði yfirtekið rekstur móð-
urbankans. British Avland var fall-
inn og íslenskur almenningur stóð
uppi með tóma innlánsreikninga.
Viðbrögð fólks lýstu reiði og von-
leysi. Margir höfðu tapað ævisparn-
aðinum, aðrir aleigunni.
Um kvöldið safnaðist hópur fólks
framan við breska sendiráðið í
Reykjavík. Rúður voru brotnar og
bál var kveikt. Ólætin stóðu langt
fram eftir nóttu og yfir tuttugu ein-
staklingar gistu fangageymslur.
Sérsveit lögreglu náði við illan
leik að forða breska sendiherran-
um, fjölskyldu hans og starfsfólki
sendiráðsins, út bakdyramegin í
brynvarinn bíl.
Bretahatur
Ekkert lát var á mótmælum næstu
vikur og óeirðalögregla tók upp
fasta vakt við sendiráðið. Það
kom þó ekki í veg fyrir að kveikt
væri í húsinu um miðjan nóvem-
ber. Fyrirhuguðum Íslandsheim-
sóknum hljómsveitanna Travis
og Belle & Sebastian var aflýst,
hundruð manna sögðu sig úr Manc-
hester United-, Arsenal- og Liver-
pool-klúbbunum, og í Reykjanesbæ
komu unglingar saman og brenndu
Harry Potter-bækur á tröppum ráð-
hússins.
Fréttatímarnir yfirfylltust af
viðtölum við fokreiða landa: Kona
á Selfossi hafði tapað andvirði ein-
býlishúss, hjón á Hofsósi misstu
sjóðinn sem þau höfðu safnað í til
elliáranna, maður í Kópavogi tapaði
160 milljónum króna. Ýmis félaga-
samtök og stéttarfélög áttu einnig
um sárt að binda. Þannig tapaði
Félag langveikra barna öllum fram-
lögum sem safnast höfðu í nýlið-
inni landssöfnun, og Rauði kross-
inn afrakstri átaksins Göngum til
góðs. Með sjónvarpsviðtölum við
reiða Íslendinga birtust svipmyndir
af bankastjórunum bresku og hug-
myndafræðingunum á bakvið Brit-
save, jakkafataklæddum á ferð um
fjármálahverfi Lundúnaborgar.
Náin tengsl
Ekki minnkaði reiði landsmanna
þegar fjölmiðlar tóku að graf-
ast fyrir um fortíð bankans. Í ljós
kom að British Avland-bankinn
hafði lengst af verið ríkisbanki en
í umdeildri einkavæðingu í byrjun
aldar verið seldur hópi kaupsýslu-
manna með vafasama fortíð í Rúss-
landi Jeltsíns. Tíunduð voru tengsl
hópsins við ráðherra í bresku rík-
isstjórninni og staðfest að varafor-
maður stjórnar bankans var einka-
vinur þáverandi forsætisráðherra
Bretlands. Sá síðarnefndi var nú
orðinn seðlabankastjóri, sá hinn
sami og hafði fullvissað íslenskan
almenning um ábyrgð breskra yfir-
valda á Britsave. Þá vakti það enn
fremur gremju er fréttist að ráðu-
neytisstjóri í breska fjármálaráðu-
neytinu hafði selt hlutabréf sín í
BAB, fyrir tæplega eina milljón
punda, tveimur vikum fyrir fall
bankans, eftir að hafa setið neyð-
arfundi um fallvaltleika Britsave-
reikninganna.
Með góðu eða illu
Bretahatrið tók þó fyrst við sér
þegar breska ríkisstjórnin neitaði
að gangast í ábyrgð fyrir British
Avland þegar í stað og greiða fyrir
tjón viðskiptavina hans á Íslandi,
en tapið var talið hlaupa á eitt
til tvö hundruð milljörðum
íslenskra króna. Einkum lagð-
ist þessi afstaða illa í land-
ann í ljósi þess að nokkrum
vikum áður hafði breska
þingið samþykkt neyðarlög
sem tryggðu allar innstæð-
ur í þeim útibúum breskra
banka sem starfrækt voru
á Bretlandseyjum.
Að loknum löngum fundi
ákvað ríkisstjórn Íslands
að bæta þeim landsmönn-
um sem áttu fé á Britsave-
reikningunum tapið með
sérstökum framlögum úr
ríkissjóði. Ákvörðunin var
umdeild. Margir sökuðu
Britsave-reikningshafa um
grægði, og setningar eins og
„þetta fólk getur sjálfu sér um
kennt“ og „af hverju á öll þjóðin
að blæða fyrir græðgi örfárra?“
flugu um netheima. Málið fékkst
þó samþykkt á Alþingi
með naumum meiri-
hluta. Við umræðurnar
lét fjármálaráðherra
þau orð falla að vissu-
lega væri málið „ömur-
legt í heild sinni“ en
fleira yrði að gera en
gott þætti. Hann full-
vissaði þjóðina um að
hér væri aðeins um
tímabundin útgjöld að
ræða. „Þessa peninga
munum við sækja til
Bretlands, með góðu
eða illu!“
Britsave II
Í byrjun árs 2009 voru
fyrstu samningafund-
irnir í Britsave-deil-
unni haldnir í Reykja-
vík. Bretar höfðu þá
viðurkennt ábyrgð sína
á innstæðunum eftir
þrýsting frá Evrópu-
sambandinu og undir-
ritað viljayfirlýsingu
(Britsave I) þess efnis.
Deilan hafði þá vakið
talsverða athygli utan
landanna tveggja, ekki
síst hin óbilgjarna
afstaða Breta, þar sem
Britsave-skuldin var
einungis brot af þarlendri þjóðar-
framleiðslu. Breska stjórnin taldi
málið þó mikilvægt því það hefði
„ótvírætt fordæmisgildi“.
Snemmsumars lágu samnings-
drög fyrir og voru skömmu síðar
lögð fyrir breska þingið en mættu
þar mikilli andstöðu. Harðast-
ir gegn samningunum voru sam-
flokksmenn forsætisráðherrans
fyrrverandi sem nú gegndi emb-
ætti seðlabankastjóra. Umræður
um málið urðu hatrammar og stóðu
með hléum allt til áramóta þegar
Britsave II var loks samþykkt í
breska þinginu með stuðningi nokk-
urra þingmanna úr minnihlutanum.
Samkvæmt samningunum skuld-
bundu Bretar sig til að láta þrotabú
British Avland-bankans ganga upp
í Britsave-skuld þeirra við Íslend-
inga og greiða síðan eftirstöðvarnar
á tíu árum.
Óvænt útspil
Hin langa saga málsins tók hins-
vegar óvæntan snúning þegar Eng-
landsdrottning beitti fornu laga-
ákvæði, sem aðeins einu sinni
áður hafði verið virkjað í breskri
sögu, og vísaði málinu í þjóðarat-
kvæði. Megin-
rök drottning-
ar voru þau
að „gjá hefði
myndast milli þings og
þjóðar“, en deilan brann
heitt á breskum almenn-
ingi sem leit á Brit-
save-málið sem próf-
stein á það að græðgi
fjárglæframanna nyti
ekki ábyrgðar ríkis-
sjóðs. Vikurnar á undan
höfðu nýstofnuð samtök
áhugafólks, ItDepends,
safnað yfir 30 millj-
ón undirskriftum sem
skoruðu á drottningu að
synja lögunum staðfest-
ingar.
Til að gera langa
sögu stutta felldi breska
þjóðin málið í þjóðar-
atkvæðagreiðslu með
miklum meirihluta.
Viðbrögðin á Íslandi
létu ekki á sér standa.
Ný tegund mótmæla
varð til þess að flug-
félögin Icelandair og
Iceland Express lögðu
endanlega niður flug til
Bretlandseyja, og stuttu
síðar varð Framhalds-
skólinn á Húsavík fyrst-
ur skóla til að leggja
alfarið niður kennslu
í ensku. Sjálfhætt var
hjá íslensku leikmönn-
unum í enska boltanum og þeir
komu saman heim með Goðafossi
í lok janúar. Þá var hárgreiðslu-
kona úr Grindavík hætt komin er
hún kveikti í sér á Trafalgar-torgi
í miðborg Lundúna.
Britsave III
Við tók ný samningalota sem, vegna
þingkosninga og stjórnarskipta í
Bretlandi, lauk ekki fyrr en síðla
hausts 2010. Skipuð hafði verið ný
samninganefnd fyrir Íslands hönd,
undir forystu bandaríska samn-
ingamannsins Lee Bullhawk. Bret-
ar mættu einnig með nýskipað lið.
Fyrir nefnd þeirra fór Daninn Jes-
per Poulsen, sem samkvæmt bresk-
um dagblöðum var talinn „þekkja
vel hugarfar hinnar óbilgjörnu
norrænu eyjþjóðar“. Ráðning hans
lagðist illa í marga Íslendinga og
samfara nýtilkomnu Bretahatri
gekk hið fræga Danahatur í endur-
nýjun lífdaga.
Nýr samningur í Britsave-málinu
lá fyrir í lok nóvember. Ekki voru
allir sannfærðir um ágæti hans. Í
Silfri Egils og fleiri þáttum fullviss-
uðu íslensku samningamennirnir
þjóð sína um að lengra yrði ekki
komist gagnvart þessari „þrjósku
og nísku eyþjóð“ á meðan sömu
menn voru í símatímum útvarps-
stöðva sakaðir um landráð. Í Bret-
landi risu deilurnar þó öllu hærra.
Þarlendir sérfræðingar í Evrópu-
rétti, sem og lagaprófessorar við
háskólana í Oxford og Cambridge,
fullyrtu að Bretum bæri „engin
lagaleg skylda til að bæta það tjón
sem breskur einkabanki veldur í
öðrum löndum“, töluðu um „prin-
sippmál“ og vildu láta reyna á
„dómstólaleiðina“. Aðrir töldu þó
farsælla að leysa málið með samn-
ingum, ella gæti það endað fyrir
Evrópudómstólnum þar sem Bret-
ar ættu síður von á góðu, í ljósi þess
hvernig deilan hófst.
Eftir stutta en snarpa umræðu
í breska þinginu var Britsave III
samþykkt með traustum meiri-
hluta atkvæða. „Það er gott að fá
þetta mál út úr heiminum,“ sagði
stjórnarþingmaður í viðtali við Sky-
fréttastöðina.
Þjóðin sem löggjafi
Elísabet önnur Englandsdrottning
var þó ekki á sama máli. Eftir að
hafa tekið sér tveggja sólarhringa
umhugsunarfrest ákvað hún að vísa
hinum nýju samningum til þjóðar-
innar, rétt eins og þeim fyrri. „Það
grundvallaratriði hlýtur því að ráða
niðurstöðu krúnunnar, hvað sem
líður kostum hinna nýju samninga,
að þjóðin fór með löggjafarvald í
Britsave-málinu og ekki hefur tek-
ist að skapa víðtæka sátt um að
þingið ráði nú eitt niðurstöðu máls-
ins.“
Tilkynningu Bretadrottningar
var sjónvarpað beint á Íslandi og
óhætt er að segja að landið hafi
nötrað í kjölfarið. Forsætisráð-
herra hvatti fólk til stillingar en
þrátt fyrir það söfnuðust um það
bil tvö þúsund manns við breska
sendiráðið og létu ófriðlega. Bretah-
atrið náði nýjum hæðum. Fremstir
í flokki fóru Evrópuandstæðingar,
anarkistar, ungir andkapítalistar
og nýstofnaður flokkur þjóðernis-
sinnaðra hægrimanna, Heimavörn.
Var þess krafist að Íslendingar slitu
stjórnmálasambandi við Breta
þegar í stað og sendiráðinu í Lund-
únum yrði lokað.
Á stærstu gatnamótum höfuð-
borgarinnar birtust níðmyndir af
Englandsdrottningu sem og and-
samkynhneigð slagorð um leikar-
ann og sjónvarpsmanninn Stephen
Fry. Þá voru tvær naktar brúður
sem hengdar höfðu verið í göngu-
brú yfir Miklubraut látn-
ar óáreittar af lögreglu.
Brúðurnar, sem héngu í
hengingar-ól og skörtuðu
áberandi kynfærum, sýndu
andlit Karls Bretaprins og
Camillu konu hans. Eftir að
rúður höfðu verið brotnar
á skemmtistaðnum Players
og fleiri boltabörum ákvað
Stöð 2 Sport síðan að leggja
niður útsendingar frá leikj-
um í enska boltanum. RÚV
brást við með því að fresta
frekari sýningum á bresku
sjónvarpsefni, svo sem Skúla
skelfi, Taggart og Dauðir
rísa.
Amman og dópið
Nú er aðeins tæpur mánuður
þar til Bretar ganga að kjör-
borðinu. Margir Íslending-
ar láta sér fátt um finnast
á meðan aðrir fylgjast með
kosningabaráttunni í gegnum
breskar sjónvarpsstöðvar og
netsíður, en flestir íslensk-
ir fjölmiðlar hafa nú úthýst
öllum fréttum frá Bretlandi.
Sjónarmiðin sem heyrast eru
söm og áður. Andstæðingar
samninganna fullyrða að það
sé „ekkert í evrópskri löggjöf
sem skipar okkur að borga
Britsave“ á meðan fylgjend-
ur þeirra vilja „sýna Íslend-
ingum sanngirni“.
Í vikunni sem leið vakti
sjónvarpskonan Urmee Dhai
nokkra athygli er hún lýsti því yfir
í þætti sínum að „Bretar verði þó
að horfast í augu við þá staðreynd
að hér fór breskur banki ráns-
hendi um íslensk heimili“. Sjónar-
mið hennar þótti þó missa vægi er
breskir miðlar greindu frá vinskap
hennar við íslensku forsetafrúna.
Hinn kunni dálkahöfundur Guardi-
an, Arthur Donaly, orðaði andstæð
sjónarmið er hann þvertók fyrir
að Britsave-málið væri hefðbund-
in milliríkjadeila. „Málið er miklu
stærra en svo. Það snýst um þá ein-
földu kröfu að almenningur sé ekki
látinn blæða fyrir asnaskap gráð-
ugra bankamanna. Af hverju ætti
amma gamla að greiða fíkniefna-
skuld barnabarnsins?“ Vöruflutn-
ingabílstjóri á Bíldudal, sem tapað
hafði „heilsunni og fjölskyldunni“ á
Britsave, brást við þeim orðum með
því að brenna breska fánann í garð-
inum hjá sér, í fimmtánda sinn.
Nýjustu skoðanakannanir sýna
að úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunn-
ar geta farið á hvorn veginn sem er.
Kosið verður 9. apríl.
Ekkert lát var
á mótmælum
næstu vikur
og óeirðalög-
regla tók upp
fasta vakt við
sendiráðið.
Það kom þó
ekki í veg fyr-
ir að kveikt
væri í húsinu
um miðjan
nóvember.
BRITSAVE
Hallgrímur Helgason rekur hér sögu breska netbankans sem gerði marga Ís-
lendinga ríka en síðan reiða og loks brjálaða, nú þegar rétt um fjórar vikur
eru þar til Bretar ganga að kjörborðinu, þar sem örlög Britsave-málsins munu
ráðast, eftir að Elísabet II Englandsdrottning synjaði lögunum staðfestingar.
Hallgrímur
Helgason er
rithöfundur og
myndlistarmaður.
Hann hefur
reglulega skrifað
pistla í Frétta-
blaðið. Síðasta
skáldsaga hans
„10 ráð til að
hætta að drepa fólk og byrja að
vaska upp“ kom út 2008. Hallgrímur
vinnur nú að nýrri skáldsögu sem
væntanleg er með haustinu. Þá er
kvikmyndin Rokland, byggð á sam-
nefndri skáldsögu frá 2005, til sýnis í
kvikmyndahúsum.
Rithöfundur og myndlistarmaður