Fréttablaðið - 12.03.2011, Blaðsíða 12
12. mars 2011 LAUGARDAGUR
Fáðu þér iPhone 4 á ævintýralegu
verði hjá Vodafone
7.777 kr. á mán. í 18 mán.
Staðgreitt: 139.990 kr.
iPhone 4 er kominn aftur í verslanir
okkar á einstöku tilboðsverði. 1 GB
gagnamagn á mán. fylgir í 12 mán.
Komdu í verslanir Vodafone og
tryggðu þér eintak!
Algert iPhone æði
vodafone.is
STJÓRNSÝSLA Jóhanna Sigurðardóttir
forsætisráðherra hefur óskað form-
lega eftir því við Fjársýslu ríkisins
að laun hennar sem handhafa for-
setavalds verði lækkuð sem nemur
þeirri launalækkun sem forseti
Íslands tók á sig í ársbyrjun 2009.
Gunnar H. Hall fjársýslustjóri
staðfestir að einn af þremur hand-
höfum forsetavalds hafi óskað eftir
slíkri launalækkun.
Eins og Fréttablaðið hefur fjallað
um fá forsætisráðherra, forseti
Alþingis og forseti Hæstaréttar
laun sem handhafar forsetavalds
þegar forsetinn er erlendis. Hver
um sig fær þriðjung af launum for-
seta.
Ekki náðist í Ástu Ragnheiði
Jóhannesdóttur, forseta Alþingis,
eða Ingibjörgu Benediktsdóttur,
forseta Hæstaréttar, við vinnslu
fréttarinnar í gær, og því er óvíst
hvort þær munu einnig fara fram á
lægri greiðslur.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
Íslands, óskaði eftir því í lok árs
2008 að laun hans yrðu lækkuð. Þá
höfðu laun forsætisráðherra lækkað
um fimmtán prósent og óskaði Ólaf-
ur eftir sömu lækkun.
Þar sem stjórnarskrá kveður á
um að óheimilt sé að lækka laun
forseta á miðju kjörtímabili þurfti
hann að óska eftir því við Fjársýslu
ríkisins að launagreiðslur til hans
yrðu lækkaðar.
Þrátt fyrir launalækkun for-
seta lækkuðu laun handhafa for-
setavalds ekki, þrátt fyrir að emb-
ætti forseta Íslands hafi í tvígang
bent á misræmi í greiðslum til for-
seta og handhafanna í samskiptum
við Fjársýslu ríkisins, sem sér um
greiðslurnar fyrir hönd ríkisins.
Ágreiningur er uppi um hvort
miða skuli við útborguð laun for-
seta eða laun hans eins og kjararáð
hefur úrskurðað um þegar greiðslur
til handhafa forsetavalds eru reikn-
aðar.
Embætti forseta Íslands telur
eðlilegt að miða við útborguð laun
forseta en Fjársýsla ríkisins og
starfsmannaskrifstofa fjármála-
ráðuneytisins telja að miða verði við
laun forseta eins og þau hafa verið
ákveðin af kjararáði.
Laun forseta Íslands voru um 1,8
milljónir króna á mánuði áður en
hann óskaði eftir lækkun, en um
1,5 milljónir frá því lækkunin tók
gildi um áramótin 2009.
Forsætisráðherra, forseti Alþing-
is og forseti Hæstaréttar hafa hing-
að til fengið um 20 þúsund krónur
fyrir hvern dag sem forsetinn er
erlendis. Jóhanna mun samkvæmt
útreikningum Fréttablaðsins fá um
17 þúsund krónur á mánuði eftir að
hún óskaði eftir lækkun.
brjann@frettabladid.is
Jóhanna vill sömu
lækkun og forsetinn
Lagalegur ágreiningur er um launagreiðslur til handhafa forsetavalds milli
embættis forseta og Fjársýslu ríkisins. Einn af þremur handhöfum hefur farið
fram á að greiðslur til hans lækki í samræmi við launalækkun forseta.
LAUN LÆKKUÐ Fram hefur komið hjá aðstoðarmanni Jóhönnu Sigurðardóttur að
hún hafi ekki áttað sig á því að laun hennar sem handhafa forsetavalds hafi ekki
lækkað í samræmi við lækkuð laun forseta Íslands. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON