Fréttablaðið - 12.03.2011, Side 96

Fréttablaðið - 12.03.2011, Side 96
DREIFING: dreifing@posthusid.is EF BLAÐIÐ BERST EKKI: 512 5060 VIÐ SEGJUM FRÉTTIR SMÁAUGLÝSINGASÍMINN OG SKIPTIBORÐ: 512 5000 VÍSIR Ritstjórn: 512 5313, Fax: 512 5301, ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild: auglysingar@frettabladid.is PRENTUN: Ísafoldarprentsmiðja Mest lesið FRÉTTIR AF FÓLKI Lærir bjórfræðin Stefán Pálsson, höfundur spurninga í skemmtiþættinum Ha? á Skjá einum, lærir nú að verða kennari. Þó enginn venjulegur kennari, þar sem hann er nú í stífri æfingakennslu í Bjórskóla Ölgerðarinnar. Vonast hann til að vera farinn að kenna Íslendingum að drekka bjór innan fáeinna vikna. Sjálfur er hann mikill áhugamaður um mjöðinn og nýtir flest tækifæri sem gefast til að ausa úr viskubrunninum. Það má því velta fyrir sér hvort Sóli Hólm og Edda Björg í Ha? fái strembnar spurningar um humla og ger í næstu þáttum, en nýlega var ákveðið að fjölga þáttunum úr 12 í 15. Hringdu í síma ef blaðið berst ekki FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN Meiri Vísir. nýtt nýtt nýtt nýtt nýtt nýtt 1 Alveg viss um að skólinn myndi hrynja 2 Um 300 lík við strandlengjuna 3 Íslendingur í Japan býr sig undir tsunami 4 Tíu metra flóðbylgja skall á hafnarbæ 5 Húsið byrjaði að vagga Í boði Páls Óskars Söngstjarnan Páll Óskar Hjálmtýs- son verður með tónleika á Ísafirði í kvöld á árvissu grímuballi Ísfólks- ins, stuðningsfólks Körfuknattleiks- félags Ísafjarðar. Páll ætlar ekki að slá slöku við heldur bjóða krökkum og foreldrum þeirra upp á ókeypis skemmtun í Krúsinni um miðjan dag, taka sína helstu slagara, gefa sér tíma til að ræða við aðdáendur og gefa eiginhandaráritanir. Söngv- arinn hefur heldur betur komið til móts við aðdáendur sína í vikunni. Á miðvikudag aflýsti hann á síðustu stundu stóru unglingaballi sem hann ætlaði að halda á skemmtistaðnum NASA. Þess í stað bauð hann upp á endurgreiðslu og áritanir á staðnum, sem bættu mörgum ballmissinn. - afb, jab

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.