Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1924, Side 7

Sameiningin - 01.08.1924, Side 7
229 meö lotningu og ást, sem andlegs fööur. En svo að segja sam- tímis dr. Jóni Bjarnasyni hóf séra Páll Þorláksson prédikunar- starf sitt í nýlendunum, í Wisconsin fyrst, þar sem hann stofn- aöi hinn fyrsta íslenzka söfnuð í Vesturheimi, og svo í Nýja Islandi og Norður-Dakota. En honum var ekki ætlaður lang- ur aldur hér í stríðskirkju Krists. Ungur gaf ihann út líf sitt fyrir Guðs orö og ættbræöur sína. Má til hans heimfæra ritn- ingarorðið: “Meiri elsku hefir enginn, en að hann gefi líf sitt fyrir vini sína.” Eg nefni ekki neina þá, sem enn eru á lífi, en þó koma við þessa sögu. En þriðja aðal-prédikarans frá -'byrjunartíð is- lenzkrar kristni hér í Vesturheimi ber aö minnast og mikilla á- hrifa hans. Séra Friörik J. Bergmann kom ungur og nývígður til nýlendunnar í Noröur-Dakota árið 1886,—tveimur árurn síðar en séra Jón Bjarnason kom alfarinn til Winnipeg. Áhrif hins unga og glæsilega kennimanns á Gardar náðu þegar út til allra íslendinga. Á vörum hans loguöu lifandi orö, sem aldrei fyrn- ast og af penna hans hrukku eldlegir neistar, sem kveiktu líf í sálum manna. Um langt skeið var séra Friðrik Bergmann helzti frömuður lærdóms og listmenta með Islendingum vestur hér, og ávalt veröur hann talinn — mannlega talað — annar aðal-grunnsteinn íslenzkrar kirkju í Vesturheimi. Er vér minnumst þessara þriggja frumvotta — séra Jóns, séra Páls og séra Friðriks — og þökkum Guði fyrir þá alla, og jafnframt minnumst gildis hinnar kristilegu prédikunar, þá dregur það ekki úr trúargleði vorri og öruggleik, þó vér og minnumst þess, aö þessir þrir prédikarar voru hver öðrum ólíkir og þá stundum greindi á um skilning hins heilaga orðs, er þeir allir elskuðu. Það er í vorri kirkjusögu eins og kirkjusögunni alment, að hugsunarstefnur verandi, farandi og komandi tíða velja sér, hver um sig, andans mestu menn að málsvör- um sínum. Raunalegur árekstur verður á stundum, en jafnvel árekstur himinhnattanna er nauðsynlegur við og við, svo loft sé heilnæmt og jafnvægi í sólkerfinu. Um stund veröa þrumur, en þær þrumur geta orðiö til blessunar. Ágreiningurinn, sem var milli stefna þessara þriggja fyrstu prédikara, þarf ekki aö verða oss til ógagns, nema svo, að vér séum þau lítilmenni og ’höfum í oss svo lítið af Guðs anda, að vér ekki kunnum að meta né nota gullkorn guðlegra sanninda nema í innsigluöum umbúð- um með fangamarki eigin hleypidóma. Vér, sem erum andleg- ir arfþegjar þessara frumherja, munum, er ár líða, kunna æ betur að notfæra oss afurðir þeirra miklu anda. Ef vér reyn-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.