Fréttablaðið - 12.03.2011, Page 84
12. mars 2011 LAUGARDAGUR
Fáðu þér iPhone 4 á ævintýralegu
verði hjá Vodafone
7.777 kr. á mán. í 18 mán.
Staðgreitt: 139.990 kr.
iPhone 4 er kominn aftur í verslanir
okkar á einstöku tilboðsverði. 1 GB
gagnamagn á mán. fylgir í 12 mán.
Komdu í verslanir Vodafone og
tryggðu þér eintak!
Algert iPhone æði
vodafone.is
Miðasala | 568 8000 | borgarleikhus.is
TVEGGJA TÍMA HLÁTURSKAST... MEÐ HLÉI
Opal – bætir andrúmsloið
Fáðu þér frískandi Opal og skelltu þér á Nei ráðherra! – fjörlegan og sprenghlægilegan gamanleik – í Borgarleikhúsinu.
F
í
t
o
n
/
S
Í
A
Justin Timberlake og Jess-
ica Biel standa á tíma-
mótum eftir að fjögurra
ára sambandi þeirra lauk
nýverið. Sambandið var
stormasamt og margoft
sauð upp úr hjá þeim.
Justin Timberlake og Jessica Biel
hafa ákveðið að binda enda á sam-
band sitt eftir fjögur ár saman.
Samkvæmt tímaritinu People
rann sambandið sitt skeið og var
ákvörðunin tekin í sameiningu.
Talsmenn Timberlakes og Biel
sendu frá sér sameiginlega frétta-
tilkynningu þar sem sambandsslit-
in voru staðfest. „Við staðfestum
að þau hafa ákveðið að fara hvort
í sína áttina. Þau skilja sem vinir
og bera enn mikla virðingu fyrir
hvort öðru,“ stóð meðal annars í
tilkynningunni.
Sambandsslitin koma líklega
fáum á óvart enda hafa tímarit
flutt reglulegar fréttir af vanda-
málum í sambandinu allt frá því
að þau tóku saman. Timberlake
mætti einnig á Óskarsverðlauna-
afhendinguna í febrúar ásamt
móður sinni og ýtti það enn frek-
ar undir orðróminn um að sam-
band hans og Biel hefði liðið undir
lok. Parið tók saman skömmu eftir
sambandsslit Timberlakes og leik-
konunnar Cameron Diaz og því
töldu margir að þetta nýja sam-
band yrði ekki langlíft.
TIMBERLAKE
einhleypur á ný
BÚIÐ SPIL Samband Justins Timberlake og Jessicu Biel hefur runnið sitt skeið.
STORMASÖM SAGA
OKTÓBER 2007 Tímaritið The
Enquirer flytur fréttir af því að
Timberlake hafi daðrað við unga
fegurðardís á skemmtistað. Auk
þess á hann að hafa daðrað við
leikkonuna Kirsten Bell.
JANÚAR 2008 Timberlake á að
hafa haldið framhjá Biel með leik-
konunni Kate Hudson á meðan
Biel var stödd við tökur í Englandi.
JÚNÍ 2008 Parið flytur inn saman
og er Biel þar með orðin fyrsta
kærastan sem Timberlake deilir
heimili með.
ÁGÚST 2008 TMZ heldur því
fram að parið eigi von á barni. Sá
grunur reyndist rangur.
OKTÓBER 2008 The National
Enquirer heldur því fram að
Timberlake hafi beðið Biel þar
sem hún sést skarta fallegum
demantshring á fingri.
MARS 2009 Sögur um sambands-
slit Timberlakes og Biel verða æ
fleiri. Vinir Timberlakes segja í við-
tali við OK! að parið rífist stöðugt
og það sé aðeins tímaspursmál
hvenær þau slíti sambandinu.
JÚNÍ 2009 Lindsay Lohan skrifar
á Twitter-síðu Timberlakes: „Hvar
er Jessica, svikarinn þinn?“ Hún
átti að hafa séð Timberlake kyssa
stúlku á skemmtistað. Lohan
sagði síðar að óprúttinn aðili
hefði brotist inn á Twitter-reikning
hennar og að hún bæri ekki
ábyrgð á færslunum.
JÚLÍ 2009 Parið hefur ekki sést
saman í nokkurn tíma og að sögn
vina er sambandið ekki traust.
SEPTEMBER 2009 US Weekly
flytur fréttir af sambandsslitum
Timberlakes og Biel. Vinur söngv-
arans segir að parið hafi hætt
saman í gegnum síma. Stuttu síðar
eru fluttar fréttir af því að parið
sé tekið saman aftur og nokkrum
dögum eftir það er því haldið fram
að Timberlake hafi haldið framhjá
Biel með Rihönnu.
OKTÓBER 2009 Biel er stödd í
Kanada við tökur á The A-Team á
meðan Timberlake er myndaður
í kvennafans á skemmtistöðum í
Los Angeles.
APRÍL 2010 Timberlake daðrar við
fyrrverandi kærustu sína, Cameron
Diaz, á tökustað Bad Teacher.
JANÚAR 2011 Fjöldi sögusagna
um meint framhjáhald Timberlak-
es með leikkonunni Oliviu Munn.
N
O
R
D
IC
PH
O
TO
S/
G
ET
TY