Sameiningin - 01.10.1919, Síða 4
224
— Ekki borgað fyrir jmð ? Það er heldur ekki búið að
borga Kristi.
Bandalagið. Unga fólk, heyrið nöfnin, ykkar nöfn.
Ekkert á Guð prýðilegra í söfnuði sínum á jörðu, en félög
liinna ungu, sem gefa Jesú lijörtu sín og starfa að mál-
efni ríkis hans. Nú er Drottinn að kalla. Hverju svar-
ar 'þú, unga sál?
“Gæt þú lamba minna.” Ef þú elskar mig, Símon
Jóhannesson, þá gæt þú vel ungviðanna í hjörð minni,
segir Ivristur. Drottinn kallar á kennara til starfs í
sunnudagskóla. Jfikla virðingu veitir hann þeim, sem
hann vill trúa fyrir börnunum. Daufheyrumst ekki, ef
Drottinn nefnir oss til þess starfs. Máttur vor er lítill,
en Guð gefur anda sinn.
1 hverjum söfnuði er mikið verk að vinna. Xafna-
kall er viðhaft og Drottinn skiftir verkum. Sáluhjálp
manns er undir því komin, að heyra og hlýða.
Síðnstu orðin, sem skráð eru eftir Maríu, móður
meistarans, eru þessi: “Hvað sem liann segir yður,
skuluð þér gjöra. ” Hún mælti þetta við þjónana í Kana.
Verkið, sem Jesús svo fól þeim, virtist ekki merkilegt.
Ekki annað en að fylla nokkur ker með vatni. En fyrir
það verk þeirra opinberaðist dýrð Drottins og lærisvein
ar hans trúðu á hann. Svo verður oft enn í söfnuðí
Drottins. Þar fyrir: Hvað sem hann segir yður, þaf)
sJculuð þér gjöra.
--------o-------
Um hjónaskilnað.
Ný lög um lijónaskilnað eru gengin í gildi í Manitob-
ba og öðrum fylkjum í Canada. Fram til síðasta árs
hefir verið afar erfitt að fá hjónaskilnað í Canada, ekki
fengist nema með ærnum kostnaði fyrir sérstaka löggjöf
á sambandsþingi. Nú er þessu brevtt og dómstólar
hvers fylkis hafa vald til að uppleysa hjónabandið fyrir
þær sakir, sem lög ákveða. Síðan lög þessi gengu í gildi.
eftir úrskurð frá leyndarráði Breta, hafa mylnuhjólin
komist í talsverða lireyfingu hér um slóðir og ekki svo