Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1919, Qupperneq 30

Sameiningin - 01.10.1919, Qupperneq 30
250 um mannvirðingarnar — gátu ekki á sér setið á þessari hátíð- legu stund, þegar frelsarinn var að hugsa um skilnaðinn og píslirnar fram undan (sjá Lúk. 22, 24—27). Hann vildi sýna þeim, að enginn er of góður til að þjóna, og sá er mestur, sem bezt þjónar. (4). Hví vildi Jesús ekki hætta við að þvo fætur Péturs? Postulinn hefir efalaust þurft lexíunnar við allrar —þurfti víst að eiga endurminninguna uni það, að meistarinn hefði þvegið honum um fæturna. (5). Hvernig á að skilja orð Jesú um það, að sá væri allur hreinn, sem laugaður væri? Sjálfsagt á að skilja þau á andlega vísu: Sé synd þín fyrirgef- in, þá ertu allur hreinn fyrir Guði. Hjá honum er enginn hálf- verknaður. (6). Hvaða hátíðisdagur er nefndur eftir þessu verki frelsarans? Skírdagur. Hann dregur nafn af sögninni “að skíra”, sem þýðir að hreisa eða þvo, af því að í katólskri kristni hefir bókstafleg merking verið frá elztu tímum lögð í áminning Jesú um eftirdæmið, er hann gæfi með fótaþvottin- um. Á skírdag er það siður hjá katólskum, að stórhöfðingjar, verzlegir eða kirkjulegir, þvo fætur tólf fátæklinga. (7). Hvernig skiljum vér mótmælendur þessa lexíu frelsarans? Á þann eðlilega hátt, að vér eigum að vera með sama hugarfari, sem Jesús Kristur var, og ekki telja oss of góða til neinnar hjálpar eða þjónustu, sem vér getum af hendi leyst. Kristin- dómurinn gjörir alla þjónustu dýrlega. Stjórn og þjónusta rennur þar saman í eitt — þjónustan ekkert annað en hjálp eða aðstoð. Sá sterki þjónar hinum veika, sá vísi hinum fávísa, sá heilagi hinum syndugu, sem þurfa frelsunar við. Valds- maðurinn er þjónn laga og réttar, og um leið allra þjónn. pjón- ustan því hið sanna aðalsmerki: vottur um þrótt, göfgi, dugnað og viljaþrek. Að þiggja þjónustu, merki um það, að þú ert í einhverju hjálparþurfi. pví minni hjálp, sem þú veitir öðrum og því meira, sem þú lætur aðra hjálpa þér, því meiri veikleik eða lítilmensku lætur þú um þig spyrjast. Mikilmennin hafa öll þjónað; lítilmennin haf ætíð kepst við að láta aðra stjana undir sig. Verkefni: 1. Skírdagskvöld. 2. pjónsmynd Jesú. 3. Sam- Jesú og Péturs á þessu kvöldi.

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.