Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.10.1919, Side 8

Sameiningin - 01.10.1919, Side 8
228 Seint í sumar náðu sendimennirnir lútersku til Pól- lands. Stjórnarformaðurinn þar, Paderewski, tók þeim tveim höndum og sendiherra Bandaríkjanna greiddi götu þeirra. Sendimenn dvöldu þriggja vikna tíma þar í landi og ferðuðust víða. Skýrsla er komin frá þeim og segja þeir, að á Pólandi gamla hafi verið 650 þús. lúterstrúarmanna. Hafi þeir orðið fyrir ofsóknum miklum meðan á stríðinu stóð og margir þeirra verið gerðir landrækir. f n ý j a Pólandi segja þeir vera miljón lúterskra manna, og á stöðv- um þeim, sem ráðgert er að sameinist í allsherjar ríkið póska, búi tvær miljónir lúterskra manna. í Pólandi hafa margar kirkjur og önnur guðsþjónustu- hús verið lögð í eyði og sömuleiðis margir skólar og prest- setur. Nú er fólkið að tínast heim aftur úr útlegðinni, alls- laust, og hefir að engu að hverfa, því heimilin hafa ýmist verið brend eða þá gengið í hendur Gyðinga og kaþólskra manna. Ástandið er hið hryggilegasta. Hungursneyð, klæðleysi og sjúkdómar sverfur hart að lýðnum. iSendinefndin skorar á kirkjuna í Ameríku að senda tafarlaust til Pólands stórt upplag af pólskum biblíum og lúterskum guðsorðabókum, er þýddar verði á pólsku. Nefnd- in biður um heilan skipsfarm af klæðnaði og fataefni. Enn fremur biðja þeir um 100,000 doll. til að líkna með bræðrum vorum á Pólandi. The National Lutheran Council hefir þegar sent helming þeirrar upphæðar, og er að safna því sem enn vantar. Einnig eru samtök um alt land til þess að safna fatnaði, — allskonar fötum, sem, þó ekki sé ný, eru enn nothæf. Loks leggur nefndin til, að pólsku kirkjunní lútersku sé veitt lán að upphæð miljón doll. til sex eða sjö ára. Ýrði fé því varið til þess hjálpa bændum að reísa við bú sín og til að koma upp skólum og kirkjum. Loks er frá því að skýra, að sendimennirnir lútersku komu í öndverðum síðasta mánuði (Sept.) til pýzkaland«. Sátu þeir kirkjufund mikinn, er haldinn var 1 Leipzig 9.— 11. Sept Voru þar saman komnir margir merkustu mál- svarar játninga-bundinnar lúterstrúar. Skipaði forsæti prófessor Ihmels, víðkunnur fræðimaður og háskólakennari í Leipzig. Margir háskóla-prófessorar, kirkjulegir embættís- menn og prestar voru komnir til stefnunnar. Voru fyrlr- lestrar fluttir og rætt um grundvallaratriði trúarinnar og einnig vandamál þau, sem kirkjunni hafa nú borið að höndum. Á allsherjar kirkjufundi þessum segja sendimennimir,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.