Sameiningin - 01.10.1919, Side 26
246
styrkja trú þeirra, með því að gefa þeim tækifæri til að játa þá
trú á ný. (5.) Hvað hafði fólkið ímyndað sér um Jesúm? Fólk-
ið hélt, að hann væri annað hvort Jóhannes skírari, Elías, Jere-
mías, eða einhver af spámönnunum. (6). Hverju trúðu læri-
sveinarnir um hann? Pétur svaraði, fyrir þeirra hönd: “pú
ert Kristur, sonur hins lifanda Guðs”. (7). Höfðu þeir nýlega
fengið þessa sannfæring? Nei, þegar í byrjun töluðu þeir um
hann sem hinn fyrirheitna Messías. (Sjá Jóh. 1, 42. 46). (8).
En í hverju var þá trú þeirra ábótavant? peir þektu ekki þenn-
an Messías rétt — hvorki persónuna né embættið. Guðdóm
frelsarans skildu þeir auðvitað ekki í byrjun, né heldur það, að
ríki hans væri ekki af þessum heimi. En erviðast veitti þeim
að skilja niðurlæging hans og fórnardauða. Jesús er í lexí-
unni að leiða þá inn í helgidóm þessa sannleika, en þeir skilja
hann ekki. Jafnvel Pétur hneykslast. (9). Hvað lærum vér
af lexíunni? a. Mönnum hefir aldrei komið saman um það,
hver Jesús væri. En allir kannast við mikilleik hans: lýður-
inn, sem frá er sagt, fríhyggjumenn vorra tíma, Múhameðs-
menn, Gyðingar, heiðingjar. Að hann hafi verið mikill, könn-
uðust og kannast allir við. b. Trúin á Jesúm á ekki rót sína í
mannlegri ímyndun, heldur í guðlegri opinberuii. c. pú getur
trúað á Krist og elskað hann af öllu hjarta, og þó misskilið
hann og málefni hans hörmulega, eins og Pétur. pér veitir
ekki af allri æfinni til að kynnast honum, og það með því að þú
hugsir stöðugt og alvarlega um hann og kenning hans. d. peg-
ar þú getur af öllu hjarta sagt við Jesúm: “pú ert Kristur, son-
ur hins lifanda Guðs”, þá getur hann sagt við þig: “pú ert
klettur — og hlið heljar skulu ekki verða honum yfirstrekari.”
Sá sem gefur sál sína algjörlega í Krists vald og trúir honum
fyrir sér, hann er sterkur eins og bjargið. e. Sá, sem vill trúa
Kristi fyrir sér, verður að treysta leiðsögn hans, og leiðin, sem
hann gengur á undan þér, er ekki alt af slétt. En hún er þó
auðfarin, ef þú fer hana með honum. (24. v. Sbr. Matt. 11, 29.
30).
Verkefni: 1. Játningar postulanna um Krist. 2. Messí-
asar-hugmynd þeirra. 3. Hvernig kristinn maður finnur líf
sitt með því að týna því.