Sameiningin - 01.10.1919, Qupperneq 18
238
Sunnudagsskóla-þing þau, sem haldin hafa verið ár-
lega hér í Manitoba, hafa verið sérlega uppbyggileg. par
er hinn margvíslegi verkahringur sunnudagsskólanna rædd-
ur af þeim mönnum, sem þar hafa mesta þekkingu til
brunns að bera. Eru sumir þeirra langt að komnir og víð-
frægir. Mörg hundruð kennara safnast þar saman til að
læra og verða fyrir blessunarríkum áhrifum, sjálfum þeim
til uppörvunar . Alt miðar að því einu, að safna kröftum
til að vinna það verk, sem háleitast er af öllu: að leiða æsku-
lyðinn til frelsarans Jesú Krists og kenna honum að hag-
nýta sér fagnaðarerindi Drottins.
peim öllum, sem eitthvað fást við sunnudagsskóla-
störf, er boðið á þingið og fær hver karl eða kona sæti í
þinginu, er kemur sem fulltrúi einhvers sunnudagsskóla í
Manitoba, hversu smár sem skólinn er.
Vér íslendingar höfum eðlilega af skornum skamti
þekkingu á kristilegum mentamálum. Vér ættum því að
hagnýta oss öll þau tækifæri, sem bjóðast til þess að auka
þeþkingu vora og áhuga. í hverjum íslenzkum sunnudags-
skóla ættu einhverjir þeir að vera, sem sjá sér fært að sækja
þíng þetta. Kjósið þá og biðjið þá að fara. peir koma á-
reiðanlega ekki tómhentir heim af þinginu.
peir, sem þingið sækja, ættu að kaupa farbréf til Winni-
peg og fá fyrir því viðurkenningu hjá umboðsmanni járn-
brautarinnar. Fá menn þá ókeypis far aftur heimleiðis.
John J. Swanson.
---------o---------
Ekki verður af því, að hr. S. Á. Gíslason komi til Gimlí-
prestakalls, eins og um var samið. pótti honum þegar tíl
kom ekki vistlegt á “Lagarfoss” í Október fyrir fjölskyld-
una (konu, sex börn og tvær vinnukonur) og kalt og veðra
von, þó ferð kynni að falla í Nóvember.
Enn hafa ekki nema þrír sunnudagsskólar óskað eftir
sérprentun af sd.sk. lexíunum. Ef ekki láta fleiri til sín
heyra bráðlega, þá verður ekki átt við sérprentun.
Dánarfregn.
Fimtánda maí síðastliðinn andaðist á spítala í Ripon, á
Englandi, Signaler Davíð Albert Westman, einkasonur B. D.
Westman, kaupmanns að Churchbridge, Sask., og konu hans
Ingibjargar Guðmundsdóttur Johnsen, síðast prests að Arn-
arbæli.