Sameiningin - 01.10.1919, Side 31
251
X. LEXÍA — 7. DESEMBER.
Pétur og Jóhannes sofandi í Getsemane—Mark. 14, 32—42.
Minnistexti: Vakið og biðjið, til þess að þér fallið ekki í
freistni—Mark. 14, 38.
Umræðuefni: Sofandi verðir. Til hliðsjónar: Mark. 14,
43—54; Matt. 26, 36—56; Lúk. 22, 39—54; Jóh. 18, 1—11. —
(1). Hvar og hvenær kom þetta fyrir? í grasgarði, sem kall-
aður var Getsemane, í vestur-hlið Olíufjallsins, austan við
lækinn Kedron, sem er við austur-takmörk Jerúsalemsborgar.
Nafnið þýðir olíupressa. pað var sjálfsagt nokkurs konar ald-
ingarður, alskipaður olíu-trjám. Jesús fór þangað með lærisvein-
um sínum nóttina eftir páskamáltíðina, sem frá var skýrt í síð-
ustu lexíu. (2). Hverja af lærisveinunum tók Jesús með sér
afsíðis? Pétur, Jakob og Jóhannes. (3). Hví þessa þrjá?
peir voru sjálfsagt fyrir hinum postulunum að andlegum
þroska, og handgengnastir Jesú. Sjá vii. lexíu. (4). Hvað
olli þessari sálarangist frelsaras? Píslirnar fram undan, ó-
efað, og synd og vonzku mannanna, sem á honum bitnaði. Að
hann hafi tekið “að láta hugfallast” er ekki góð þýðing. (5).
Hvernig reyndust svo postularnir þrír? peir sofnuðu, þegar
meistari þeirra leið mest. (6). Hvað olli? a. Peir voru þreytt-
ir. preytan dregur úr áhuga margra kristinna manna. Sé það
réttmæt þreyta, sem þeir gátu ekki að gjört, þá er hún þeim til
afsökunar. En oft er þreytan syndsamleg, sprottin af því,
að við höfu'm farið illa með heilsu og krafta, eða hún er ímynd-
uð og á rót sína að rekja til sérhlífni. Sjá Gal. 6, 9. b. peir
þektu ekki Jesúm nógu vel, vissu ekki, eða hugsuðu ekki út í,
hvað hann leið. Og þó hafði hann sagt þeim, hvað fyrir sér
lægi. Vér þurfum að leggja oss eftir því, að kynnast Jesú
sem bezt, annars sofnum vér líka, þegar verst gegnir. c. peir
þektu ekki sjálfa sig. póttust allir geta staðið með honum, en
sofnuðu, flúðu, afneituðu, þegar eldraunin kom. Vissu ekki,
hvar þeir voru veikir fyrir. Eins fer oss oft. Vér ætlum að
fórna svo svo miklu. pað sýnist svo létt, á meðan þú sér það
alt saman tilsýndar. En þegar að því kemur, þá er annað uppi
á teningnum. Lærðu að þekkja veiku hliðarnar á sjálfum þér
—og að styrkja þær. d. peir voru ekki viðbúnir. Höfðu sjálf-
sagt ékki áður vakað og beðið með nógri ástundun. Ef vér
temjum oss samvizkusemi og leggjum stöðuga rækt í öllum
smáatriðum hversdagslífsins við skyldur vorar gagnvart Guði
og mönnum, þá stöndum vér oss betur, þegar á reynir. (7).
Hvernig varð Jesús við þessum veikleika þeirra? Áminti þá
með mildum orðum og gaf þeim ráð við hættunni.
Verkefni: 1. Angistin í Getsemane. 2. Bæn Jesú þar.
3. Bænheyrslan.