Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1920, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.02.1920, Blaðsíða 6
36 dregnar skopmyndir orðið að því daglega bi auði audans, sem fréttablöðin gæða lesendum sínum á. Þó eru til undantekningar. Blaðið Cliristian Science Monitor var stofnað fyrir nokkrum árum í sviprðum tilgangi og þeim, sem þessir Chicago-menn gjöra grein fyrir í boðsbréfi sínu. Mary Baker Eddy, spákona Christian Science hreyfingarinnar, hafði lítinn gáning á dagblöðum landsins. Þau gáfu of mikið róm öllu því, sem ljótt er og ilt í tilverunni. Ekkert þess háttar er í raun og veru til, sagði Mrs. Eddy, það er alt saman sjón- hverfing. Auk þess voru blöðin ekki sanngjörn í garð þeirrar sérkreddu, sem lcona þessi barðist fyrir. Afleið- ingin varð sú, að Mrs. Eddy stofnaði dagblað á eigin býti. Atti það að flytja þarfar fréttir og uppbyggilegar, en hafa hnevkslin út undan, og 'auðvitað að vera trú- boðsblað þeirra Ssience-mamm uxn leið. Fyrirtækið hef- ir hepnast, betur ef til vill, heldur en Mrs. Eddv sjálf ætlaðist til. Christian Science Monitor flytur að sönnu kórvilluna, sem blaðið er nefnt eftir, á vissri blaðsíðu hvers eintaks, en þar fyrir utan er efnið heilbrigt og gott, og sönn fyrirmynd í nýtri blaðamensku. Hefir ])ví Monitor fengið mikla útbreyðslu og er af mörgnm óvilliöllum mönnum talið með allra nýtustu dagblöðum B andaríkj ann a. Það sem Christian Ssience gat gjört, ætti ekki að vera ókleyft rétttrúaðri kristni. Yandinn er, að geta borið á borð fyrir lesandan heilnæma fæðu, en um leið svo fjölbreytta og bragðmikla, að almenningur vilji kaupa. Bcirnið og haðvatnið. Newéll Dwight Hillis lieitir klerkur sem nú þjónar Plymouth söfnuði í Brooklyn- Henry Ward Beecher var einu sinni prestur þeirrar kirkju, og ýmsir merkir kennimenn hafa þjónað þar síðan. Hillis lætur ekki sitt eftir liggja í þeirri klerkaröð. Hann flytur ljóm- andi ræður og íburðarmiklar, stundum um kristna trú. Eins og aðrir tízku-sinnaðir menn í hans stöðu, þá tal- ar Hillis forkunar-vel um kristindómin og höfund hans, þangað til talið berst að einhverri grein í guðfræðmni.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.