Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.02.1920, Blaðsíða 29

Sameiningin - 01.02.1920, Blaðsíða 29
59 una til hennar, og Miss Evans ætlaöi varla að trúa sínum eigin augum, að þetta væri Anna. Hún var svo ólík þvi, isem áður hafði verið, af þVí að hún var með fallegan hatt á höfðinu, hárið hennar var smekklega greitt og fötin hennar fóru vel, því aldrei hafði neitt annað barn verið í þeim áður. “Hvað er iþetta, Anna!” hrópaði Miss Evans upp yfir sig. “Segðu mér ihvaS hefir komið fyrir, barnið mitt!” “Ó, Miss Evans!” sagði Anna, og lagði báða handleggi um háls kenslukonunnar. “prír dollararnir á mánuSi, sem þú sendir til Frakklands, hafa komið því til leiðar, að eg fæ alla æfi aS vera hjá móður minni! Eg hefi eignast foreldra! Eg kem ekki framar í þennan iskóla, því við eigum heima í öðru hverfi borgarinnar, en eg kom til þess að láta þig vita, aS nú erum við ekki í neinum vandræðum með að fá fólk til þess að styrkja börnin á Frakklandi. pað á eg alt þér að þakka, og eg get aldrei fullþakkaö þér það, sem þú hefir gjört fyrir mig.” Og hún sagSi henni alla isöguna, hvernig þetta hafði atvik- ast, og þakfcaði henni hvað eftir annað fyrir hvað hún hefði verið sér góS. “Nei, Anna mín,” sagði Miiss Evans, “þaS er ekki mér að þakka, heldur því, hve góð stúlka þú ert og ósérplægin.” En Anna heldur því enn fram, að hún eigi Miss Evans og Mrs. Baoon þá miklu gæfu isína að þakka, að hún á nú góSan föður og góða móSur, gott heimili dg bjarta framtíð. --------o-------- Sunnudagsskóla-lexíur. XI. LEXÍA. — 14. MARZ. Jóhannes á e.vjunni Patmos—Opb. 1, 4—18. Minnistexti: Jesús Kristur er í gær og í dag hinn sami og um aldir.—Heb. 13, 8. 1. Úr hvaða riti er lexían? Úr Opinberun Jóhannesar — síðasta riti nýja testamentisins. 2. Hver skrifaði þá bók? Höf- undurinn var Jóihannes guðspjállamaður, eftir vitnisburði elztu fræðimanna kirkjunar. 3. Hvert er efni bókarinnar? Höf- undurinn segir frá vitrunum, sem bar fyrir hann á meðan hann var í útlegð á eyjunni Patmos í Grikklandsahfi. 4. Hvað merkja þær vitranir? pær eiga að sýna okkur íbaráttuna, sem kirkja Drottins á í við myrkraöflin 'hér 'í heimi — hvernig Guð vernd- ar kirkju sína í öllu þVí stríði, og veitir henni að lokum algjör- an sigur. 5. Hverjir eru söfnuðirnir sjö (4. v.) ? Sjö kristnir

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.