Sameiningin - 01.02.1920, Qupperneq 8
38
segir, kvernig er þá með i*éttu móti hægt að gjöra guð-
iast úr þeirri kenning, a ðsyndin hafi orðið til og orðið
aímenn? Það er ekki gott að sjá, hvernig önnur kemi-
ingin getur verið Guði isamhoðin, en hin ekki. Nema
það sá þá minna guðlast að liugsa sér, að syndin hafi
verið manninum meðsköpuð frá upphafi!
Bkki er heldur gott að sjá, hvernig “dæmisagan,”
sem Hillis nefnir svo, hefir verið hái-toguð- Kenni
hún ekki uppliaflegt sakleyi mannsins, freisting, fall og
arfgenga syndspilling, hvað kennir liún þá? Enga skýr-
ing gefur hann á því máli.
Þó er sá hængurinn ef til vill eftirtektarverðastur, að
slíkar mótbárur fella fleira en rétttrúnaðinn, sé þær ann-
ars nokkurs virði. Þær ráðast í raun og veru jafnt á
alla guðstrú. Svo er um þetta “guðlast,” sem Hillis
prestur þykist hafa fundið í kenningum kirkjunnar um
erfðasyndina. Það vill nú svo óheppilega til, að alls
konar sýking, líkamleg og andleg, gengur í erfðir, þar
{ meðal siðferðis-Spilling og slæmar tilhnegingar. Um
það efni gefur raun vitni alstaðar, og vísindarannsóknir
hafa styrkt þann vitnisburð mikillegáj. Er nú Guð
reynslunnar verri en þessi spilti unglingur, sem Hillis
talar um? Ekki breytir sá Guð erfðalögmálinu, þegar
mn arfgengt böl er að ræða. Það er bersýnilegt. En
hví er hún þá svo ljót, gamila kenningin, að þessi sami
Guð hafi látið sama lögmálið óhindrað á dögum Adams?
Sjálfsagt er guðfræði kirkjunnar ábótavant í mörg-
nm greinum. Engin sanngjarn maður lieldur því fram,
að fræði þau séu alfullkomin og óskeikul, og þurfi því
hvergi nýrrar athugunar við. En í þau hefir verið
lagt, öld fram af öld, s\ro mikið af heilagri alvöru, sann-
leiksást og siðferðisáhuga, svo mikið af ósérhlífinni
h.ugsun og djúpri lífsreynslu, að þeim verður ekki lirund-
ið með fáeinum sleggjudómum.
Kona nokkur var að lauga barn, segir sagan. Hún
var hreinlát og mesti vinnuþjarkur, en ekki gætin ao
sama skapi. Yarð því asin svo mikill, að hún skvetti
barnunganum út með baðvatninu, þegar búið var.
Svipað hefir stundum komið fvrir nýmælamennina,