Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1920, Page 18

Sameiningin - 01.04.1920, Page 18
114 greindu: pessir menn eru sviftir atkvæðum jafnt fyrir því, þótt þeir kunni að framleiða þarfar vörur með stritvinnu. Lið- ur þessi Ihefði rekið þá frá kjörrétti báða, séra Jón Bjarnasun og séra Friðrik Bergmann, þótt fáir hafi verið meiri eljumenn með Vestur-íslendingum. Og jafnvel þótt Iþeir hefði gefið frá sér lærdómsiðkun, ritstörf og sálgæzlu, en tekið upp einhverja handliðn, þá hefði það ekkert stoðað, af því að þeir voru prest- vígðir menn og fóru með andlegt orð á hélgum. Einn liður er þó merkilegastur í þessari fáránlégu grein; hann kórónar alt hitt, sem á undan er komið. Sá liður tekur atkvæðin af öllum þeim, sem sovetin svifta borgararétti fyrir eigingjörn eða óheiðarleg afbrot, og skulu þeir vera án þeirra réttinda svo lengi sem dómurinn ákveður” (65, g). Her er ekkert um það sagt, hverjar þessar “eigingjörnu og óheiðar- legar” sakir skuli vera. Sovietin geta skýrt þann lagastaf eftir vild og ástæðum. Liðurinn er því auðsjáanilega til þess ætl- aður, að bola frá kjörétti öllum þeim mótstöðumönnum Lenines, sem önnur ákvæði ná ekki til. Bolsjevikar hafa sovietin á sínu bandi, sem sagt, og haga öllum þessum áðurgreindu laga-liðum á þann veg, að bolsjevisminn geti framvegis orðið þar einn um hituna. En ef svo skyldi fara, að einhverjiir af sovieGmönnum yrði óánægðir með stjórnarfarið, þá ráðið handhægt. pað þarf ekki annað en dæma þá þrjózkuseggi seka um einhver “eigin- gjörn og öheiðarleg afbrot,” og svifta þá öllum borgararétt- indum. Á þann ihátt rná skera niður allan mótþróa gegn Bol- sjeviikum, jafnóðum og á honurn bryddir í sovietunum. pað liggur fyrir utan verkahring Sameiningarinnar, að halda fremur með einni stjórnmálastefnu en annari. En úr því að borin var brigð á ummæli vor um einræði Bolsjevika, þá fanst oss réttast að segja af þeim hlutum hið sannasta, isem vér vissum. Geta svo lesedur sjálfir dæmt um það, hvort þessi þröngi kjöréttar-bás hjá soviet-mönnum, sé betri en svigrúm það hið stjórnarfarslega, sem talið hefir verið með aðal-kostum þjóðlifsins hér í Vestuiheimi. G. G. Eg af krossi Krists mig stœri. (pýðing) Hinn víðfrægi enski sálmur, “In the Cross of Christ I Glory”, er eftir göfugan Englending, Sir Jöhn Bowring. Á æskuskeiði var hann, að sögn, vantrúaður. Mælt er, að hann hafi eitthvað kunnað í íslenzkri tungu. — Til er fremur lausleg

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.