Sameiningin - 01.05.1923, Side 4
130
þingsins. UmræSuefni: Kristileg og kirkjuleg vakning. Máls-
hefjandi: séra Hjörtur J. Leó, er gó'öfúslega hefir tekiö að sér
verkið í stað séra Rúnólfs Marteinssonar.
Mánudagskvöldið þ. 18., flytur séra Jónas A. Sigurðsson
fyrirlestur.
Samkvæmt lögum kirkjufélagsins, eiga sæti á þinginu
prestar og embættismenn félagsins og erindrekar safnaða þess.
Skal einn erindreki kosinn fyrir hverja ioo fermda safnaðar-
limi og þar fyrir innan, tveir fyrir meira en ioo og alt upp aö
200, þrír fyrr meira en 200 og alt upp aö 300, fjórir fyrir meira
en 300, en fleiri en fjóra skal enginn söfnuður senda. Erind-
rekar þurfa að hafa skriflegt vottorð frá söfnuði þeim, er þeir
mæta fyrir, um að þeir standi í þeim söfnuöi kirkjufélagsins
og hafi verið kosnir á lögmætum safnaðarfundi. Skrifari fé-
lagsins, séra Friðrik Hallgrímsson, sendir öllum söfnuðum eyðu-
blöð.
Eiga allir söfnuðir að senda erindreka á þing; en ef ein-
hver söfnuður getur það ekki, þá á hann að senda þinginu skrif-
lega afsökun. Vil eg biðja erindreka að muna, að til þess er
ætlast að þeir verði komnir á þingstað í byrjun þings. Líka vil
eg mælast til þess við söfnuði þá, sem ekki eru þegar bunir að
því, að senda féhirði, herra Finni Jónssyni, 676 Sargent, Ave.,
Winnipeg, árstillög sín fyrir fyrsta júni, og eins tillög sín í
heimatrúboðs- og heiðingjatrúboðs-sjóð kirkjufélagsins, svo og
áskrifendur eða innköllunarmenn Sameiningarinnar áskriftar-
gjöldin. í byrjun júní fer fram yfirskoðun allra reikninga
kirkjufélagsins. Ennfremur minni eg á stöðuga umkvörtun
skrifara, þá, að sumir söfnuðir sendi alls enga skýrslu.
Vil eg svo að lokum biðja bræður og systur innan kirkju-
félagsins, og eins utan þess, að biðja Drottin, kirkjunnar
konung, að láta anda sinn vera yfir þinginu og í og með verki
þess, svo að það verði ríki hans til eflingar.
Tímanum varð' að breyta frá því, sem auglýst var í síð-
asta bl. “Sam.”, sökum atkvæðagreiðslu um vínbannið þ. 22.
júní. Var þá í blaðinu skýrt frá því, að líklega myndi breyt-
ing óhjákvæmileg. Selkirk, Man., í maí 1923.
N. Stgr. Tliorláksson, fors. k.fél.
Sönn mentun.
Eftir Alexander Irvine.
(Ræða þessi var flutt í veizlu i London við það tækifæri, að
um 150 námsmenn höfðu lokið háskólaprófi. Einn háskóla-