Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1923, Blaðsíða 20

Sameiningin - 01.05.1923, Blaðsíða 20
146 nýl'átna í New York, og C. H. Thordarson, raffræ'ðing í Chicago, sem þá er sérstaklega hafi náð viðurkenningu hér í landi, og áð- ur hefir hanri .nefnt Thomas H. Johnson, sem nafnkunnan st j órnmálamann. í síðasta kafla ritsins segir höf. svo frá, að það sé alment viðurkent, að Islendingar hafi reynst góðir borgarar 'hér í landi, líkt og frændur þeirra af Norðurlöndum. Að sumu leyti hafi íslendingar staðið ver að vígi en aðrir innflytjendur, átt við meiri fátækt og hleypidóma að stríða, þegar þeir komu hér fyrst. Ættjörð sinni hafi Vestur-íslendingar verið til sóma. Ekki ætlar prófessorinn að íslenzkt þjó'ðerni eigi hér langa framtíð, né íslenzk tunga verði hér töluð' til lengdar. Um það farast honum orð á þessa leið: “Eg get ekki gert mér þá sjón- hverfing, að ætla að íslenzkt þjóðerni og íslenzk tunga haldist við í Vesturheimi til lengdar. Til þess eru íslenzkir innflytj- endur alt of fáir, búa á of mikilli dreyfingu, og börn þeirra hafa til lengdar e'kki áhuga á, né gagn af, að varðveita þessi sérkenni, enda myndi þeim veita það örðugt þó þau vildu. Fáeinar þús- undir hverfa brátt inn í miljónirnar”. Um þetta eru ekki allir höf. sammála. En tíminn sker úr því ágreinings-máli innan skamms. MINNINGARRIT ÍSLÉmSKRA HERMANNA. Mikið verk og lofsamlegt hefir félag íslenzkra kvenna, er kennir sig við Jóns Sigurðsson, unnið með iitgáfu þessarar stóru bókar. Jóns Sgurðssonar félagið er deild í hinu volduga félagi brezkra kvertna er nefnir sig Dætur Keisaradœmisins. Er það þjóðræknisfélag, og ætlunarverk þess er að glæða ást til Bretlands og styðja það í hvívetna. Starfaði félagið með miklum dugn- aði á stríð^sárunum og afkastaði miklu í þarfir hernaðarins. Var aðal-verk þess líkn og hjúkrun innan brezka hersins og hjálpsemi við sifjalið hermanna heima fyrir. íslenzka deildin vann það verk, ásamt fleiru, alð safna skýrslum um íslenzka hermenn meðan á stríðinu stóð. Þvi verki hélt félagið1 áfram að loknu striði, með mikilli fyrirhöfn, og hefir nú gefð út afar-stóra bók með myndum af öllum ís- lenzkum hermönnum, sem unt var að ná í myndir af, ásamt stuttu æfiágripi hvers eins. Atuk þess eru í bókinni ritgerðir um tildrög stríðsins, þátttöku þjóða í því og friðinn. Hefir verið vandað til bókarinnar eftir föngum og verður elcki annað sagt með sanngirni, en að all-vel hafi útgáfan tekist, þrátt fyrir

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.