Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.05.1923, Blaðsíða 32

Sameiningin - 01.05.1923, Blaðsíða 32
158 Hjér blasa við okkur fjallatindarnir, æöstu sannindin, í kenningu Jesú: Guðdóraur frelsarans og fórnardauöi, og sjálfsafneitunin, sem hann krefst af öllura lærisveinum sínum. Hvern segja menn mannssoninn vera? — Hvern segiS þér mig vera? Undir því er kristindómur manna kominn, hvernig þess- um mikilvægu spurningum er svaraS. Aítriðin þrjú, sem áður voru nefnd, standa í órjúfanlegu sambandi hvert viö annaS. Sá Jesús meira en maSur, þá er krossdauöinn annaS meiraí en manns- dauði. Fórnin hlýtur þá að vera eitthvað miklu æðra og dýr- mætara en það, að hann hafi látiö lífið fyrir' kenning sína — eins og komið hefir fyrir marga menn. Sé Jesús guðdómlegur í eigin- legum og isönnum skilningi, þá er friðþæging í písluml hans, guð- leg líknarfórn, til þess ætluð, að bæta hið mikla megin-böl allra manna, syndasektina; og þá um leið gefur krossdauðinn homum til- kall til sérhverrar mannssálar. Hlann hefir þá keypt okkur með blóöi sínu og þjáningum. Þessi tvö atriði standa því í nánu og eðlilegu sambandi við hið þriðja—hlýðnina. Margir segja nú á dögum, að kristindómurinn sé allur í því fólginn að hlýða Jesú Kristi, taka upp krossinn og fylgja honum eftir. En hlýðnin er undir því komin, hvernig við lítum á frelsarann. Sé hann okkur aðeins maður, þá fylgjum við honum og trúum eins og manni — með afföllum. En sé hann í sannleika sonur hins lifanda Guðs, þá erum við um leið( skuldbundin til að trúa honum algjörlega fyrir okkur, og afneita okkar eigin geð- þótta, yfirgefa alt og fylgja honum eftir eins og guðlegri veru. Ög eins er um dauða Jesú. Ef við skoðum þau æfilok eins og mann- lega fórn, þá erum við auðvitað í þakklætisskuld við Jesúm Krist — eins og Sókrates eða Jóhann Húss. En hafi Jesús dáið fyrir syndir okkar, þá erum við hans eigin eign. Þannig standa kristin trú og kristin hlýðni1 í órjúfanlegu sam- bandi. Trúin getur ekki verið sönn og einlæg, ef hlýðnina vant- ar, og hlýðnin verður næsta ófullkomin áni trúarinnar. Sönn trú og sönn hlýðni eru alsystur. Þær fæðast báðar í einu í manns- hjartanu, og hvorug þrifst án hinnar. Það er því auðséð, af hverju Jesús fór þegar að tala um píslir sínar og dauða, þegar Pétur hafði borið' fram játninguna miklu. Trúin á Jesúm er hornsteinn kristinnar kirkju. Á þeim grunni er hún óbifanleg. En færist hún þar út af, þá stendur hún ekki á bjargi aldanna framar, heldur á sandi mannasetninga, og færi svo — sem aldrei verður — þá myndi hún von bráðar hrynja til grunns. Sálviar: 13, 59, 103, 170, 347, 14, 333, 3, 17. Embættismenn Árdalssafnaðar eru í ár: Tryggvi Ingjaldsson éformaðurj, Sigurjón Sigurðsson fskrifarij, Baldvin Jónsson Jféh.), Síefán Guðmundsson og Jón M. Borgfjörð.

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.