Sameiningin - 01.05.1923, Blaðsíða 14
140
Til þeirra, sem mannlega hugarfræði kenna, þarf
enginn sá að leita huga sínum lækninga, sem með stöð-
ugu hugarfari iætur áhrif Guðs anda ná til sín. Æ-
varandi friður er þeim fyrirbúinn, sem temur sér guð-
rækilegt hugarfar. Innri óttinn, sem er mesti óvinur
lífsins, víkur fvrir heilögum anda. En þeim, sean biður,
gefur Guð heilagan anda, samkvæmt orði frelsarans.
--------o----------
Trúarsaga Nýja Testamentisins.
Fáum dögum áöur en línur þessar eru ritaSar, barst oss
í hendur frá höfundinum, séra Sigurði P. Sívertsen, prófessor
í guðfræði við háskóla íslands, ný bók og mikil, sem heitir
Trúarsaga Nýja Testamentisins.
Nú, þótt vér ekki höfum enn getað gagnrýnt bókina til
hlítar, viljum vér ekki leggjast það undir höfuð, eð geta hennar
þegar að nokkru, og þakka mikilsvirtum höfundi mjög hjart-
anlega fyrir sendinguna.
Alt það, sem vér höfum átt kost á að ná í eftir próf. Sig. P.
Sívertsen á síðari árum, höfum vér lesið með mikilli ánægju, og
]jað eins fyrir því, þótt vér eigi séum honiun ávalt sanimála í
skoðunum. Alt, sem hann ritar, ber vott um sannleiksást og
ráðvendni; en það eru frumskilyrði þess, að vísinda-iðkun
manns verði til blessunar.
Bók sú, er umræðir, er all-stór vexti (^380 bls.j. Ókleyft
hefði verið að gefa hana út á eigin kostnað, því naumast má
gera ráð fyrir, að hún verði mjög mikið keypt af alþýðu. En
háskcli íslands á yfir nokkru fé að ráða til útgáfu vísindalegra
rita, og er bókin gefin út með styrk úr “Sáttmálasjóði Háskóla
íslands”. En svo er sjóður sá tilkominn, að þegar skilnaður
varð með íslendingum og Dönum, greiddu Danir íslendingum
eina miljón króna til fullnægju kröfum Íslendinga um inni-
eign hjá Dönum, og í stað Garðs-styrks íslenzkra námsmanna.
Skal sjóðnum varið til vísinda-iðkana og útgáfu bóka á íslenzku
og dönsku.
Bók þessi er fyrst og fremst ætluð til kenslu í guðfræða-
deild háskólans, en svo hefir höf. viljað fara með ef.nið ljóst
og skiljanlega, að leikmenn geti lika haft bókarinnar not.
Bókin fjallar um þá grein guðfræðinnar, sem mestu málf
varðar: trúfræði Nýja-Testamentisins sjálfs. Venjulega er
fræðigrein þessi nefnd c/uðfrœði Nýja-Tcstamcntisins. Mun svo