Sameiningin - 01.05.1923, Blaðsíða 19
145
höf. segir, að í Kirkjufélaginu hafi verið þröngsýni svo mikrð
aS prestar frá Islandi geti ekki þolaö þaö. Þetta er varla rétt,
þvi einmitt á árunum, sem liSin eru síöan helzt hafa viösjár
veriö meö mönnum út af “þröngsýni” innan Kirkjufélagsins,
hafa ekki svo fáir prestar og kandidatar á Islandi boöiS sig
fram til þjónustu innan Kirkjufélagsins, þó ekki hafi verið unt
aS taka framboöi þeirra.
Kórvilla er þaö hjá háttvirtum höf., er hann segir um Jóns
Bjarnasonar skóla: “Annar kennaranna hafi verið íslend-
ingur, en hinn enskur Canada-maöur.” Sannleikurinn er, aö
kennararnir hafa ávalt veriö þrír og allir verið íslenzkir. Lýs-
ing prófessorsins á skólanum er ekki glæsileg: “Skólinn á dálítiö
íslenzkt bókasafn; á hinn bóginn á hann ekki þak yfir höfuöiö,
en verður að> hafast við í litlu leigu'húsi, er yfirleitt illa útbúi.in
og hefir einungis fáa nemendur. Augljóst er, aö hann getur
naumast haft varanleg áhrif til viðhalds íslenzku þjóðerni í
Ameríku.” — Satt er þaö., aö skólinn er fátækur, en þó hefir
hann boriö gæfu til þess, að fá þá viðurkenningu hjá mentamála-
mönnum þessa fylkis, aö hafa búiö nemendur sína betur undir
inntökupróf í háskólann, en nokkur annar skóli í fylkinu, og
hlutfallslega hafa færri nemendur úr þeirn skóla fallið vi'ö þau
próf, en nemendur tir öðrum skólum.
1 þriöja kaflanum segir höf., aö furðu gegni, hversu vel
Vestur-íslendingar hafi varðveitt móöurmál sitt. “Auðvitað
er málið bæöi i ræöu og riti alt annaö' en hreint”, segir hann þó.
Telur hann síðan upp blöð þau og tímarit, sem út hafa verið
gefin og segir stuttlega sögu þeirra og álit sitt á þeim. Þykir
honum viðkoman ekki lítil, en bætir viö: “Ef þeim aö eins væri
ekki svo mjög ábótavant, bæði með mál og mentun, sem rira
fyrir almenning”.
All-langt mál er um skáldin. “Tala skáldanna er því nær
óendaleg”, segir höf. Á skáldaskrána setur höf. þessi nöfo:
Kristinn Stefánsson, J. 'Magn. Bjarnason, Þorbjörn Bjarnarson,
Magnús Markússon, Sigfús B. Benediktsson, Siguröur J. Jóhann-
esson, Sig. Júl. Jóhannesson, Gísli Jónsson, Bjarni Lyngholt,
Jón Runólfsson. Sigurbjörn Jóhannsson, Þ. Þ. Þorsteinsson,
K. N. Júlíus. Er svo sérstakur þáttur um Stephan G. Stephan:-
son, sem höfuöskáld Vestur-íslendinga, og önnur grein um
Guttorm J. Guttormsson, sem höf. segir að sé eina íslenzka skáld-
ið, sem fætt er í Ameríku.
Fjórði kaflinn er um Vilhjálm Stefánsson, feröir hans og
ritstörf. Nefnir hann þó einnig John G. Holm, blaðamanninn