Sameiningin - 01.07.1914, Page 3
115
gengu í félagið á þinginu: Hallgríms-söfnuður og Lög-
bergs-söfnuður, báðir í Saskatcliewan.
Embæt-tismenn kirkjufélagsins voru allir endur-
kosnir: séra Björn B. Jónsson, forseti; séra Friðrik Hall-
grímsson, skrifari; lir. Jón J. Vopni, féhirðir. Vara-
embættismenn eru: séra Rúnólfur Marteinsson, vara-
forseti; séra Jóhann Bjarnason, vara-skrifari; hr. Þor-
steinn Oddsson, vara-féhirðir.
Fyrirlestrar tveir voru fluttir á þinginu. Flutti
annan séra Kristinn Iv. Ólafsson, um Vitnisburð Krists
vm sjálfan sig, en hinn flutti séra Jóhann Bjarnason og
nefndi Bjargráð. Erindi langt flutti og séra Friðrik
Friðriksson um Fri&þœginguna, og var það uppliaf á al-
mennum umræðum um það atriði trúarinnar. Öll þau
erindi, ásamt þingsetningar-prédikaninni, birtast hér í
blaðinu.
Kirkjuvígslur tvær framkvæmdi forseti sunnudag-
inn í kirkjuþinginu (28. Júní). \'ar fyrir hádegi vígð
kirkja Víðiness-safnaðar, og flutti séra Guttormur Gutt-
ormsson prédikun; en eftir hádegi var vígð kirkja Gimli-
safnaðar, og prédikaði þá séra Rúnólfur Marteinsson, er
söfnuðinum liafði fyrrum þjónað í tíu ár. Myndir og
lýsingar á kirkjunum vonast “Sam.” eftir að geta flutt
bráðlega.
Yfir þingi þessu livíldi mikil sorg, þar sem liinn mikli
leiðtogi, séra Jón Bjarnason, dr. theol., hafði verið burt
kallaður þrern vikum áður en þingið kom saman. En
sorgin þunga varð þinginu fyrir guðs náð til blessunar.
Hún knýtti menn saman og fvlti lijörtun með lieilagri
alvöru og áliuga. Enda var það lijartfólgið mál allra þing-
manna, að heiðra minningu dr. Jóns Bjarnasonar og
reisa lionum þann minnisvarða, er ávalt stæði og bæri
blessun til komandi kvnslóða.
Aðal-starfsmál þau, er þingið tók til meðferðar, voru
14 samtals, og voru þau flest tekin á dagsrá upp úr árs-
skýrslu forseta.
1. Minningar-rit um dr. Jón Bjarnason.
Samkvæmt bending frá forseta í ársskýrslu lians, á-
kvað þingið að gefa út, svo fljótt, sem því verði við kom-