Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1914, Side 11

Sameiningin - 01.07.1914, Side 11
123 nokurn tíma gengið í bandalag með Gen .Council, eða öðrum'stórdeildum kirkjunnar, nema svo, að það mál væri áður lagt fyrir söfnuði og það yrði að almennri samþykt hjá söfnuðunum. Að öðru leyti var málið lagt á hyllu til næsta kirkjuþings. 13. Scimvinna við Pac. Syn. um prestaskóla í Seattle. Mál það var á dagskrá í tilefni af fyrirspurn á síð- asta kirkjuþingi frá forstöðumanni prestaskóla Pacific- sýnódunnar. Með því ekkert hafði á árinu komið frá for- göngumönnuiu skólans vestra, var málið felt af dagskrá. 14. Bókasafn kirkjufélagsins. Svo sem kunnugt er, á kirkjufélagið all-vandað safn islenzkra bóka, og er safnið ætlað skólanum á sínum tíma. Xú bætist við mikið og dýrmætt safn, því kirkjuþinginu var tilkynt, að dr. Jón Bjarnason hefði arfleitt kirkjufé- lagið að öllu bókasafni sínu, að undanteknum þeim bók- um, er fósturbörn lians kynnu að vilja eignast, og skyldu þau hafa valið bækur þær áður sex mánuðir sé liðnir frá dánardegi hans. Báðstafanir gerði þingið til þess, að taka lögformlega á móti þessarri dýrmætu gjöf. Ivosinn var og hr. Jón J. Yopni til að annast alt bókasafn kirkju- félagsins og geyma til næsta þings. lvirkjuþing þetta liið síðasta var gott þing og starf- samt. Margt var áformað, er til blessunar má verða fyr- ir guðs kristni vor á meðal. Framgangur málanna er nú kominn undir ötulleik starfsmanna þeir,ra, er settir voru til að annast um framkvæmdir. En framkvæmd- irnar fara þó mest eftir því, hversu vél og drengilega allur safnaða-lýður leggur sig fram til að vinna. A því ríður, að allir sé samtaka—allir eitt í Jesú nafni. Þakklátir eru allir kirkjuþingsmenn og aðrir gestir Gimli-söfnuði fyrir alúðarsama umönnun og gestrisni, ekki sízt fyrir skemtiferðina eftir vatninn, sem söfnuður- inn gekst fyrir og kostaði. Næsta þing verður, ef guð lofar, lialdið hjá Fyrsta lúterska söfnuði í 'Winnipeg í Júní að sumri.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.