Sameiningin - 01.07.1914, Page 12
124
KAFLAR ÚR ÁRSSKÝRSLU FORSETA.
Frá Brezka Biblíufélaginu er komin ný útgáfa af íslenzku biblí-
unni. Án þess aS hér veröi nokkur clómur kveðinn upp yfir þýð-
ingunni yfirleitt, skal á það mint, að oss ber sérstaklega að þakka
félaginu fyrir hina litlu og handhægu útgáfu — vasabiblíuna. Hún
er sérstakíega þægileg til notkunar i sunnudagsskólum. Biblíufélag-
ið tók og sérstakt tillit til kirkjufélags vors og tillaga þess við út-
gáfu vasabiblíunnar, svo vér ættum að nota þá útgáfu sem mest.
Biskup Islands, hr. Þórhallur Bjarnarson, sýndi oss vinsemd mikla í
sambandi við útgáfu vasabiblíunnar, og ber oss að þakka honum og
meta góðvild hans í vorn garð.
Ungmcnna-félagsskapurinn hefir átt fremur örðugt uppdráttar í
söfnuðum vorum. Bandalögin þurfa áreiðanlega að umskapast, svo
þau geti orðið að tilætluðum notum. Aðal-gallinn á fyrirkomulagi
Bandalaganna er sá, að verkefnið er í lausu lofti. Félögin eru aðal-
lega mynduð í þeim tilgangi að halda fundi. En menn trénast upp
á tómum fundahöldum. Það þarf að gefa unga fólkinu ákveðið verk
að vinna, og það ætti að vera aðal-mál þess Bandalags-þings, sem
nú á hér að halda, að ákveða verkefni fyrir bandalögin og gefa þeim
ráð viðvíkjandi starfs-aðferð. — Heilla-ár hefir þetta ár þó verið
ungmenna-félögunum—og með þeim öllum kristnum lýð íslenzkum
hér vestan hafs — fyrir þá sök, að hjá oss hefir dvalið í vetur hinn
þjóðkunni forvígismaður ungmenna-félagsskaparins kristilega á
íslandi, séra Friðrik Friðriksson frá Reykjavík. Fyrir áskorun sam-
einuðu bandalaganna kom hann vestur snemma í Desember og hefir
starfað að málefni kristindómsins og æskunnar hjá söfnuðum vorum
og bandalögum í Minnesota, Dakota, Winnipeg og Argyle-bygð.
Enn í sumar vonum vér að fá að hafa séra Friðrik Friðriksson hjá
oss, en með haustinu mun hann hugsa til heimfarar til ættlandsins og
starfsins mikla þar. Starf séra Fr. Fr. er dýrðlegt starf, og oss ber
að þakka guði fyrir þá blessun, sem koma hans hefir haft í för með
sér. Óskandi væri, að séra Friðrik gæti séð verki því, sem hann hef-
ir með höndum á íslandi, svo vel borgið í annarra góðra manna hönd-
um, að hann sæi sér fært að koma aítur til vor og ílendast hjá oss.
Séra Friðrik Friðriksson er gestur vor á þessu kirkjuþingi, og bjóð-
um vér hann hjartanlega velkominn á þingið og biðjum hann að taka
með oss þátt i störfum þingsins, og óskum jafnframt, að vera hans
á þinginu verði honum sjálfum til ánægju.
Sunnudagsskóla-starfið er hjá oss mörgum erviðleikum bundið.
Tímaritið litla, eða lexíu-blaðið, fyrir sunnudagsskólana hefir komið
út reglulega og hefir séra Guttormur Guttormsson vandað til efnis-