Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1914, Blaðsíða 13

Sameiningin - 01.07.1914, Blaðsíða 13
125 ins eftir föngum. Blaöið er alt of lítið, svo fullnægjandi sé, en mikil hjálp er þaö þó. “Ljósgeislar” eru notaðir fyrir yngstu börnin, og er þá upptalið það, er vér höfum af kenslutækjum hjá sjálfum oss, og er það lítið í samanburði við það, sem notað er í sunnudagsskól- unum ensku. Annars þurfum vér að gera oss það ljóst, að sunnu- dagsskólinn, í hversu góðu lagi sem hann er, getur ekki annast kristi- lega uppfræðslu barna nema að litlu leyti. Heimiíunum hættir við að varpa allri áhyggju og uppfræðslu-skyldu sinni á sunnudagsskólann. Heimilisfræðsla á ekki að vera minni vegna sunnudagsskólans, heldur meiri. Barnafræðslunni alment er mjög ábótavant. Eins og tilhag- ar víðast, verður ekki fræðslunni nú hagað eins og áður var. Fátt væri nauðsynlegra en það, að gefið væri út fræðslukver nýtt, er notað yrði bæði á heimilunum og i sunnudagsskólum, og enn fremur við fermingar-undirbúning, þar sem höfuð-atriði kristindómsins—sögu- leg, siðfræðileg og trúarleg—væri fram borin á þann hátt, sem sam- rímist þörfum æskulýðsins, eins og þær eru nú, og samhljóða nútíðar- kenslufræði.—Úti í sveitum er nærri ómögulegt að halda uppi sunnu- dagsskóla-starfi nema tíma og tíma úr árinu og víða alls ekki. Þar sem svo er ástatt sérstaklega, og raunar víðast hvar, þyrftu að risa upp safn'aða-skólar i hverjum söfnuði, daglegur kristindóms-skóli, er standi einn til tvo mánuði, helzt þá er alþýðuskólar ríkisins ekki standa. Helztu úrlausn kristindómsfræðslu-vandræðanna hygg eg slíka safnaðarskóla vera. Þetta er nýtt mál hjá oss og stórt mál. Hc'r er ekki tími til að leggja það greinilega fram til umræðu, en ve! gerði þing þetta í því, að taka fræðslumálin á dagskrá sína og til rækilegrar umræðu, sem eitthvert hið alvarlegasta mál, sem það hefir meðferðis. — Vér megum ekki vanrækja hina andlegu hlið kirkjumála vorra og láta oss nægja formlegar samþ)'ktir einar. Á kirkjuþingi i fyrra var um það talað, að safnaðafólki voru yrði með ritgerðum gefinn kostur á að kynnast betur trúbræðrum vorum hér í landinu, einkum kirkjufélaga-sambandi því, er General Council nefnist og vér eigum margt gott að þakka. Lítið hefir orðið af því að sú fræðsla yrði veitt, af eðlilegum ástæðum. En vel mættum vér hugsa til þess í framtíðinni að kynnast bræðrum vorum i kirkjufé- lögunum lútersku mörgu og stóru hér í Vesturheimi, — ef til vill ekki síst frændum vorum Norðmönnum og öðrum Skandinövum. Þar, og víðast í lútersku kirkjunni hér í álfu, eru hreyfingar miklar í áttina til samvinnu og sameiningar. Er það gleðilegt teikn tím- anna. Vér gætum haft gott af að komast undir áhrif þessa sam- vinnu-anda, sem nú ræður svo miklu hjá bræðrum vorum i öðrum kirkjufélögum. Það er skylda vor í öllurn efnum að kynnast sem bezt hérlendum háttum. Fyrir það þurfum vér engu því að glata, sem vér sjálfir eigum. Samvinnu getum vér vafalaust átt með öðru lútersku fólki, oss sjálfum til mestrar blessunar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.