Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.07.1914, Side 16

Sameiningin - 01.07.1914, Side 16
128 ungur kirkjunnar, hefir l:al!aö þessa trúu þjóna sina heim til sín. Okkur er íuissirinn tilfinnanlegur og sár; en samt minnumst við þeirra hér með fagnandi lofgjörS og þakklæti til drottins fyrir hið langa starf þeirra í víngaröi hans, sem varð svo mörgum til blessunar. Þegar þetta kirkjufélag var stofnað fyrir rúmum 29 árum, var Friöjón sál. meöal hinna fremstu í hópi þeirra manna, er stóöu fyrir stofnun þess, og starfaði alt af síðan undir merkjum þess af einlægum áhuga að eflingu guðs ríkis meðal Vestur-lslendinga. Þegar hann var kallaður heim á áliðnu síðastliðnu sumri, mintist dr. Jón Bjarna- son hins framliðna vinar síns meðal annars á þessa leið: ‘ Einn mann að rninsta kosti höfum vér fundið, og eignast af náð drottins— Friðjón Friðriksson—, reglulegan fyrirmyndarmann—, mann með dásamlegu jafnvsegi, heilan mann, en ekki hálfan, mann, sem alt af mátti reiða sig á, mann sem ekki þurfti háa stöðu til að lyfta sér upp; hver sú staða, sem honum hefði hlotnast, myndi með honum hafa lyfst upp; vitran mann; réttsýnan mann; góðan mann, — mann, sem bar það með sér á svipnum, að til hans væri öllum óhætt að leita ráða. Öllum vildi hann vel, og þeim, er til hans flúðu með áhyggjumál sín ervið, eða að því er virtist óviðeiganleg, persónuieg eða félagsleg, réð hann hin hollustu og praktiskustu ráð. Hann var sem Njáll í hópi vorum.” Og nú er hann, sem þessi sönnu orð talaði yfir moldum vinar síns, líka horfinn burtu úr hópi starfsbræðranna. Óendanlega mikil og dýrmæt blessun var það, sem aldrei verður fullþökkuð, þegar drottinn sendi landnámsmanna-hópnum dreifða í vesturbygðum þenna foringja, sem var höfði hærri en alt fólkið, vegna hinnar bjargföstu trúar sinnar, hiklausu trúmensku, dæmafáu ósérplægni og miklu hæfileika, — en umfram alt vegna þess, að alt sem hann var og alt sem hann átti, var algjörlega vígt og helgað þjónustu konungsins Krists- Hann hlífði sér aldrei, þótt af honum væri heimtað margra manna verk; hann hopaði aldrei, þó að mótspyrnan væri stundum hörð; hann skipaði sér í nafni drottins i brodd fylkingar, þar sem baráttan var hörðust, og þar barðist hann eins og hetja heilan manns- eldur. Það er þess vegna í alla staði eðlilegt, að við byrjum þetta lirkjuþing með því að minnast með lofgjörð til drottins foringjans hrgumstóra og kæra, sem við höfum fyrir fáum dögum íylgt til grafar “Verið minnugir lciðtoga yðar, scm guðs orð hafa til yðar talað; virðið fyrir yður, hvernig œfi þeirra lauk.” Árangurinn af æfi- starfi dr. Jóns Bjarnasonar er stórkostlegur sigur. Honum auðnaðist að verða verkfæri guðlegrar fosjónar til þes að safna vinum guðs rikis í öllum bygðum Vestur-lslendinga til kristilegs félagsstarfs undir merkjum ákveðins kristindómsboðskapar. Þetta kirkjufélag er minnisvarðinn hans. Uppbyggingu þess helgaði hann alla beztu ki afta sína; sönn velferð þess var hið mikla áhugamál lífs hans. Hins og spámaður drottins stóð hann á meðal allra, prédikandi seint og snemma Jesúm Krist, hinn krossfesta og upprisna frelsara mann-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.