Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.07.1914, Síða 21

Sameiningin - 01.07.1914, Síða 21
133 dögum, þó fáir séu, til þess að vegsama frelsara sinn sameiginlega, fullvissir þess, að hvar sem tveir eða þrír eru saman komnir í nafni hans, þar er hann mitt á meöal þeirra. Eg sé íslenzka trúboða úti í heiðingjalöndum boða fagnaðarerindi Jesú Krists, mörgum til bless- unar. Eg sé islenzka kristni taka þann þátt i hinu mikla verki guðs, sem hann hefir ætlað henni og kallað hana til. Göngum til starfa með þetta mark fyrir augum í drottins nafni. Það getur alt orSiS, ef við viljum þaS af einlægni. Því guð vill það. Og þegar viS viljum þaS, sem guS vill, þá verður það. Það er dýrSin mikla í starfskölluninni kristnu. En þar blasir lika við okkur ábyrgSin mikla. Vitnisburður Jesú Krists um Fyrirlestur á Kirkjuþingi 26. Júní 1914. Eftir séra Kristinn K. ólafsson. “Til baka til Krists,” eru einkunnarorS, sem margir guðfræð- ingar nútímans hafa valiS sér. OrSin eru heillandi og fögur. Enda er þeim eflaust ætlað að tákna trúmensku við Krist og kenningar hans. Þau eiga aS vera sem trygging þess, að sú guöfræði, er velur sér slíkt merki, sé heilbrigS og sönn og nyjög fjarri því að vera varhugaverS Og i áttina til sameiningar getur þaS virst, aS skipa sér undir þetta merki, því þá sýnist áherzlan vera lögö einmitt þar, sem helzt er vottur um eining — á Krist og kenningu hans. En það myndu langflestir samþykkja sem aöalatriðið, hve ólíkar merk- ingar, sem í það kunna aS vera lagöar En í þessum einkunnarorðum, eins og þau oftast eru notuð, felst miklu meira en liggur á yfirborðinu. Fyrst og fremst bryddir á þeim skilningi í sambandi við þau, að nútíðin hafi fyrst komist til rétts skilnings á Jesú, að hún hafi fundið hann aftur, þótt nítján alda ryk hafi hulið mynd hans fyrir heiminum, og svo aS segja gefiö hann kristninni af nýju. Án þess að ræSa á þessum stað, hvaða líkindi eru til aS annað eins og þetta gæti átt sér staS, getur manni ekki dul- ist, aS talsvert yfirlæti lýsi sér í þessarri hugsun. Að minsta kosti mælir ekkert meS þvi, að ganga út frá þvi sem sjálfsönnuöu, eða sjálfsögðu, að nútíðin hafi orðið fyrst til þess að halda fram hreinni og ómengaðri kenning Jesú. Þó virðist þráfaldlega verið gengið út frá þvi, án verulegra sannana. Nátengt þessu er annað. í huga alls þorra kristinna manna myndu orðin “til baka til Krists” tákna þaS, að hverfa til baka til Krists og kenningar hans, eins og hvorttveggja birtist í frásögu guð- spjallanna og nýja testamentinu yfirleitt. En “til baka til Krists” táknar nú hvað oftast það, áð til þess að finna hina sönnu Kristsmynd um kenningu hans, þurfi aS leita á bak við guðspjöllin, að mynd

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.