Sameiningin - 01.07.1914, Síða 34
146
þióöfélagslíkaminn verður veikur og illa haldinn. Fara menn þæ
venjulega aö leita einhverskonar bjargráða til viðreisnar líkama þjóö-
félagsins, rétt eins og gert er þegar um sjúkdóm i líkama einstak-
lings er aö ræöa.
Þannig sjáum vér nú á tímum mikiö gert aö því, að koma í veg
fvrir aö börn vinni í verksmiðjum, sökum þess, að vinnan, hversu:
létt sem hún er, heftir eða stórlega dregur úr framförum ungling-
anna, svo þeir verða með fullorðinsaldrinum lítið meira en hálfir
menn, auk þess sem þeir vaxa upp nær æfinlega án nokkurrar fræðslu:
og spillast svo í innræti og að skapferli af þessum óeðlilega þræl-
dómi á barnsaldrinum, að þeir lenda með tíð og tíma mjög auðveld-
lega inn í flokk glæpamanna, eða verða með einhverju öðru móti:
handbendi þjóðféíagsins. Þarna eru bjargráð, sem hugsandi menn
benda á til viðreisnar þjóðunum, og þau bjargráð er sem óðast veriðk
að setja í framkvæmd og verður þó gert enn betur er tímar líða.
Sama má segja um ýmiskonar aðrar umbótatilraunir meðal sið-
aðra þjóða. Samtök verkamanna og félagsskapur þeirra eru bjarg-
ráð, sem til hefir verið gripið í því augnamiði að verjast ágangi og
harðýðgi auðvalds og kúgunar. Samtök bænda miða að því sama.
Félagsbönd þeirra eru bjargráð, sem upp hafa verið fundin til að’
veita mótspyrnu ágjörnum auðfélögum, sem verzla í stórum stíl með'
afurðir landsins, en vilja láta framleiðendurna, bændurna, hafa sem:
allra minst í aðra hönd fyrir störf sín og vöru.
A5 veg hið sama má segja um tilraunir einstakra ágætismanna
meðal stjórnmálaskörunga nú á dögum, að stöðva yfirgang voldugra
auðmanna og auðfélaga og hjálpa fátækum vinnulýð til að búa við
sæmileg lífskjör. Þær tilraunir eru bjargráð, sem góðir menn og
miklir hafa komið með til að firra þjóðfélagsskipið þeim óhöppum að
brotna á skerjum sjálfselsku og eigingirni, eða þá að sigla í strand
sökum kæruleysis og ómensku þeirra, sem ráða eiga. Stjórnmála-
stefna sú hin nýja, sem er að ná sér niðri á Englandi og hefir sinn
mesta og bezta talsmann þar sem er fjármálaráðherrann sjálfur,.
Lloyd-George, er bjargráða-viðleitni, mjög viturleg, mannúðleg og
djarfmannleg og enda líkleg til sigurs. Mjög svipuð stefna er að
grafa um sig í stjórnmálum Bandaríkjanna. Forsetinn sjálfur,
Dr. Woodrow Wilson, einhver mesti ágætismaður, sem nú er uppi, er
öruggur talsmaður þeirrar stefnu, svo og William Jennings Bryan,,
annar mikill ágætismaður og nú utanríkisráðherra Bandaríkjanna-
Enn fremur þeir Theodore Roosevelt, fyrrum forseti, Robert M. La-
Folette, senator, og nokkrir mikilhæfir menn aðrir. Þessir menn sjá
hættuna, sem öfug stjórnmálastefna hefir í för með sér, og koma með
sín góðu ráð til bjargar. Stefna þeirra er bjargráð, sem hefir það
augnamið, að koma á góðri löggjöf í stað vondrar, að því er snertir
verzlun, iðnað og önnur atvinnumál, og bæta þar með hag lanas.
og þjóðar.
Þá má og benda á bindindisstarfsemina nú á dögum sem mjög
greinileg bjargráð gegn hættu ofdrykkjunnar og böli örbirgðarinnar.