Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.07.1914, Page 43

Sameiningin - 01.07.1914, Page 43
155 eins og steinn me0 allri áhöfn. Með sjópoka-kjölfestu taldist mönn- um svo til, að nær æfinlega mætti takast aö ausa skipið, þó aö hálf- fylti í bráð, og þar meö bjargast úr greipum dauðans. Fjóröungur aídar er liöinn síðan þetta var, en enn sigla menn meS grjót fyrir kjölfestu viö strendur íslands, og enn farast skip meS sama hætti og áöur, sjálfsagt aS nokkru leyti sökum þess aS bjargráS séra Odds, er bygö voru á þekking og reynslu, hafa ekki veriö notuö. Svo fer meS margt annað. Menn láta vel yfir einu og ööru, sem svo aldrei er reynt- Það vildi eg aö ekki yrði saga kirkjufélags vors. Eg vil, aö ekki veröi hægt aö segja þaS um oss á komandi tímum, að vér höfum veriS duglegir aS tala um eitt og annaö til framgangs málefn- um vorum, en ónýtir að koma nokkru í framkvæmd. Munurinn á þeim, sem illa gengur, og hinum, sem vel gengur i lífsbaráttunni, er ekki svo mjög fólginn í þvi, að öðrum gangi svo mik'lu ver en hinum aS sjá góð úrræði og útvegi í baráttunni, heldur er munurinn aðallega fólginn í því, aS aðrir komast aldrei lengra en að bollaleggingum og ráðagerðum, þar sem hinir setja góðu ráðin í framkvæmd undir eins og þeir hafa sanmærst um að ráðin eru góð. Þessi regla gildir jafnt, hvort sem um einstakling eða félög er að ræða. Mörg ár eru iiðin síðan kirkjufélag vort sá nauðsynina á að eiga sérstakan skóla, íslenzkum almenningi til blessunar hér megin hafsins. I >ó er það rétt nýlega, að hugmyndin komst loks í framkvæmd, og byrjunin er mjög líklega í sára lítið stærri stýl en þó byrjað heföi veriö árið 1893/ eins og einu sinni var talað um. Þessi dráttur hefir vafalaust orðið til mikils tjóns, þótt um það þýði nú ekki að fást. En kenna ætti þó þetta oss þá lexíu, aS vera ekki nú né í framtíöinni jafn seinir á oss að framkvæma það, sem vér vitum aö verða má fólki voru til mikillar blessunar. Kirkjufélag vort hefir helgað sjálft sig og starf sitt íslending- um í Vesturheimi. Til allra landa vorra hér vill þaö ná með náðar- boðskapinn, sem guð hefir fengið því í hendur. Énginn ís endingur, hvorki ungur né gamall, á að vera undanskilinn. Guð hefir gefið því verkefni að vinna og það verkefni langar það til að vinna með trún- aði, í anda guðs og með handleiðslu hans. En til þess að starf kirkjufélags vors beri sem blessunarríkasta ávexti, þarf starf þess á einhvern hátt að verða svo víðtækt, aS það nái til vor allra. “GefSu sjálfan þig höfðinglega’’, er spakmæli eitt eftir Thomas Carlyle, rit- snillinginn brezka. Kirkjufélag vort hefir gefið sjálft sig; þaS hef- ir fyrst og fremst gefið sig þríeinum, heilögum guði, og svo gefið sig íslenzkum almenningi hér vestan hafs. ÓhöfSinglega vill það vafalaust ekki gefa sig- Og miölungsmenn í þeim efnum ættum vér heldur ekki ánægðir að vera. Ekkert minna en höföingsskapur ætti að nægja oss. Trúboð hefir veriö, er og vérður vort fyrsta og stærsta mál. Heimatrúboð og heiöingjatrúboö höfum vér haft með höndum. Ekki dettur mér í hug að segja, að sú starfsemi hafi verið svo lítilfjörleg og þróttlítil, að óhöfðingleg hafi gjöf kirkjufélags vors veriB þar, þótt meiri hefði sú starfsemi átt að vera, ef vel hefði verið.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.