Sameiningin - 01.07.1914, Side 56
168
kaupendur blaðsins þau erindi nú án aukaborgunar.
1 þessu blaði birtast tveir fyrirlestrar, sem fluttir
voru á síðasta kirkjuþingi. Erndi það, sem séra Frið-
rik Friðriksson flutti um friðþœgingar-Jcenningu kiricj-
unnar, gat því miður ekki komið í þetta sinn, sökum þess,
að liann hefir verið á ferðalagi og ekki getað undirbúið
bandritið. Bæði erindin, sem hér koma fyrir almenn-
ings sjónir, eru að efni og frágangi svo vönduð, að þau
ættu að verða mikils metin af þeim öllum, sem láta sig
kristileg alvörumál nokkru varða. Erindi séra Kristins
K. Ólafssonar er einn þáttur þess efnis, sem hvarvetna
í kristninni er nú rætt af brennandi áhuga, og má óliætt
telja það vandað ‘‘ innlegg” í umræðurnar, sem nú standa
yfir hjá oss, eins og annarsstaðar, um persónu frelsar-
ans. Erindi séra Jóhanns Bjarnasonar vekur að sjálf-
sögðu mikið umtal, þar sem það hljóðar um veridegt efni,
sem kemur beint heim til allra. Til þarfarinnar á því, að
kristindómurinn sé boðaður á heimilunum, liafa margir
fundið. Dæmi því til sönnunar er liin stutta en skýra
liugvekja eftir hr. Iv. S. Askdal, sem birtist á öðrum stað
hér í blaðinu. “Bjargráð” séra Jóhanns verða víst af
mörgum hugleidd með mikilli alvöru. Slík erindi, sem
þessi, má fólk ekki láta eins og vind um eyru þjóta, og er
það von vor, að þau verði vandlega lesin og rædd og
verði mörgum til gagns og gleði.
Prestastefnan í Reykjavík 1914.
Hún stóð yfir 26. og 27. Júní. órættir voru þar, auk
biskups, 25 prestar og 2 guðfræðanemar. Biskupinn,
lierra Þórliallur Bjarnarson, flutti þar ágæta minningar-
ræðu um dr. Jón Bjarnason, og “tóku fundarmenn allir
undir”. Erindi þetta er prentað í Nýju Kirkjublaði frá
1. Júlí, ásamt fögrum minningar-ljóðum eftir séra Valdi-
mar Briem.
Séra Guðm. Einarsson í Ólafsvík flutti fyrirlestur
um biskupskosningu af hálfu andlegrar-stéttar manna.
ATildi hann að biskup væri kosinn af prestum landsins, en