Sameiningin - 01.07.1914, Blaðsíða 62
174
lífs hjá unga fólkinu; (2) að hafa til meðferðar sameiginleg mál
þeirra á þingum sínum og fyrir milligöngu nefnda, sem kosnar eru á
þingum; (3) að sjá um, að ný Bandalög séu stofnuð sem víðast innan
safnaða kirkjufélagsins, þar sem því verður við komið.
III. Trúarjátning■ — Trúarjátning félagsins er hin sama og
Hins ev. lút. kirkjufélags íslendinga í Vesturheimi.
IV- Meðlimir. — Öll Bandalög innan safnaða kirkjufélagsins
geta orðið meðlimir þessa sambandsfélags með því að samþykkja
þessi grundvallarlög. En ekkert má vera í löguni þeirra, er komi í
hága við þau. Skal hvert Bandalag skylt til þess, að leggja fram
eftirrit af lögurn sínum, er það beiðist inngöngu.
V. Funáir. — Félagið heldur þing einu sinni á ári á þeim stað
og tíma, sem næsta þing á undan ákveður.
Sæti á því þingi eiga erindrekar frá Bandalögunum, er því til-
heyra, og má hvert Bandalag senda einn erindreka fyrir hverja 25
meðlimi, en fleiri en fjóra erindreka rná ekkert Bandalag senda.
Skulu erindrekar leggja fram kjörbréf.
Prestar kirkjufélagsins og embættismenn hafa full erindreka-
réttindi á þinguni- Sömuleiðis hafa allir aðrir kirkjuþingsmenn
málfrelsi, þegar þing er haldið í sambandi við kirkjuþing.
Meiri hluti atkvæða ræður úrslitum allra mála á þingum, nema
öðruvísi sé ákveðið í lögum þessum.
VI. Embccttismenn. — Embættismenn félagsins eru: forsen,
skrifari og féhirðir. Vara-embættismenn skulu einr.ig kosnir, er
gegni störfum hinna í forföllum þeirra.
Skulu þeir kosnir á ársþingum til eins árs, eða þangað til næsta
ársþing er haldið.
Kosning embættismanna fer frani eftir sömu reglurn og kosning
embættismanna kirkjufélagsins.
VII. Framkvœmdarncfnd. — Embættismennirnir þrír mynda
framkvæmdarnefnd félagsins.
Skal sú nefnd undirbúa mál þau, er koma eiga fyrir ársþing
hvert, og sjá um framkvæmdir þeirra ákvæða, er samþykt eru á þing-
um, nema öðrum hafi verið það sérstaklega falið. Hún skal einnig
á hverju ársþingi, áður en embættismenn eru kosnir, leggja fram
nákvætrar sk-rs " * '*■ .a • o
Milliþinganefndir til þess að annast um sérstök mál. má einnig
kjósa, og skulu þær leggja fram skriflegar skýrslur á ársþingum-
VIII. Skýrslnr. — Hvert Bandalag skal ár hvert senda skrifara
félagsins, undir eins eftir nýár, skýrslu um hag sinn og starf á síð-
•astliðnu ári.
IX. Gjöld. — Hvert Bandalag skal ár hvert senda féhirði fé-
lagsins, undir eins eftir ný'ár, 10% af greiddum ársgjöldum meðlima
sinna á síðastliðnu ári.
Skal þeini sjóði varið til sameiginlegra mála Bandalaganna, eins
og þingið ákveður.