Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1915, Síða 31

Sameiningin - 01.04.1915, Síða 31
63 Þeir tölu'ðu saman í hljóöi dálitla stund og svo sag'ði annar þeirra við hann: “Kom þú með mér, drengur minn, og gættu þess að hafa hægt um þig og sýna engan mótþróa, ef þig langar ekki til að deyja”. Svo tók annar þeirra i hendina á honum og leiddi hann meö sér, þangað til þeir komu í einn hluta borgarinnar, sem þeir höfðu aldrei komið í áður. Þar fóru þeir inn í hús. Þeir gáfu Taro san að borða og sögðu honum, að ef hann hefði hægt um sig og gerði eins og honum væri sagt, þá skyldu þeir fara með hann heim um kvöld- ið; en ef hann gerði nokkurn hávaða eða reyndi til að strjúka, þá skyldu þeir drepa hann. Þeir sátu lengi á tali, en gættu þess að láta Taro san ekki heyra hvað þeir sögðu. Svo fór annar þeirra út, og kom að vörmu spori aftur með sterkt snæri. Með því bundu þeir hendur hans og fætur, og ámintu hann aftur um að hafa hægt um sig og hreyfa sig hvergi. Þegar þeir voru farnir, lá Taro san þar grafkyr og var að hugsa um Matsumo, vin sinn, ef ræningjarnir hefðu ekki bundið hann, þá myndi hann hafa hætt á það að hlaupa til lians og vara hann við ræningjunum, jafnvel þó að þeir hefðu hótað að drepa hann. Honum leið ósköp illa. Hann reyndi að róta höndunum, en þá meiddu böndin hann. Hann fór að hugsa um fiskinn, sem syndir á móti straumnum og gerir hverja atrennuna á fætur annarri, þangað til hann kemst upp fossinn, — og hélt áfram að reyna að losa hend- urnar. Og svo hugsaði hann um Guð Dr. Campbells, og bað: “Mikli Guð, hjálpa þú mér til að losna, svo að eg geti varað hann Matsumo við ræningjunum”. Eftir langa mæðu tókst honum að smeygja annari hendinni úr lykkjunni. Þá mintist hann sv’erðsins litla, sem faðir hans hafði gefið honurn og hann hafði stungið inn undir mittislindann. tlann náði því nú og skar á böndin. Það er farið að skyggja. Hann varö að flýta sér, ef hann ætlaði sér að finna Matsumo áður en það væri um seinam Hann læddist varlega út úr húsinu, og hljóp aftur sömu leiðina og hann hafði komið. Hann var bæði lúinn og hrædd- ur, því hann óttaðist að hann gæti mætt ræningjunum, sem höfðu hótað að drepa hann. En svo leit hann á fiskana, sem blöktu yfir húsunum, og hugsaði um Guð Campbells og hélt áfram ferðinni sem hraðast. Flugeldar voru farnir að sjást. Og Taro san herti sig enn bet- ur. Loks komst hann heim til Matsumo. Hann var búinn að loka búð sinni og var fyrir utan húsið með fjölskyldu sinni að horfa á fíugeldana. Taro san hljóp til hans og sagði honum frá ráðagerð ræningjanna. Matsumo flýtti sér að ná í lögreglumenn og faldi sig með þeim í búðinni til þess að sitja þar fyrir ræningjunum. Kona hans baðaði fætur Taro sans og handleggi hans og gaf honum að borða; síðan lét hún þjón aka honum heim. Þegar þang- að kom, var alt í uppnámi. Faðir hans hafði farið út í garð til þess

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.