Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.10.1916, Page 3

Sameiningin - 01.10.1916, Page 3
Mánaðarrit til stuðnings kirlcju og lcristindómi íslendin'io gejið út af hinu ev. lút. lcirkjufélagi fsl. í Vestrhcinn RITSTJÓRI: BJÖRN B. JÓNSSON. XXXI. árg. WINNIPEG, OKTÓBER, 1916 Nr. 8. Vetrarkoma. Víst er hann dimmur og kaldur, veturinn, en góður skóli er hann. Hann kennir það hverjum lifandi manni, að alt er deyjandi. Hann kennir það börnum mannanna, að flýja biðjandi í skjól hins almáttuga. Hann knýr oss til þess, að leita í Jesú nafni á náðir himneska föðursins og fela oss vernd hans og varðveizlu. Og sá maður, sem í trú sinni hvílir öruggur í skjóli hins almáttuga, hann kvíðir ekki vetrinum. Veturinn hefir að sumu leyti meiri blíðu að bjóða, en sjálft sumarið. Á sumrin eru menn sífelt úti og margir koma varla heim. Á vetrum sitja menn inni í hlýindum húsa sinna og eru h e i m a. Og alt af er hlýjast og bezt heima. Veturinn færir mörgum frið og blíðu heima-sælunnar. Og helzt er á vetrum tóm íil að líta í bók og safna fá- einum blómum göfgandi hugsana. Kristnu fólki er og veturinn sjálfkjörin árstíð húslestra ög guðræknis-iðk- ana. pá kenna foreldrar börnum sínum kristin fræði og þá læra börnin bænirnar sínar hjá mömmu sinni. pegar logar bjart á arninum inni, hvort sem er í höll eða hreysi, og ástfylt hjörtu sitja þar hvort hjá öðru og Guð er hjá þeim, þá eru ekki hríðarbyljirnir úti hættulegir. Hitt er annað mál, ef hjörtun eru köld og Guði fjarri.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.