Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1916, Qupperneq 19

Sameiningin - 01.10.1916, Qupperneq 19
241 (þar sem nú er pýzkaland, Austurríki, Belgía, Holland og Norðurlönd) og niður eftir Danúb-dal alt til Svartahafs. Tevtóna eina höfðu Rómverjar aldrei sigrað. peir stóðu Rómverjum þúsund ár að baki að menningu, en fólk það var hraust fólk til líkama og sálar. Á fjórðu eða fimtu öld e. Kr. náðu Tevtónar yfirráðum yfir menningu heimsins og hafa þau aldrei gengið úr höndum þeirra síðan. Hverjir eru þá Tevtónar nú á dögum? Tevtónar voru frá upphafi aðgreindir í marga flokka og verður fárra einna hér getið. peir er fyrst koma til sögunnar (þegar slept er viðureign Caesars við Galli og Germana til forna), eru Gotar. peir áttu heimkynni í Danúb-dalnum og seinna umhverfis Hadrea-haf. Œddu þeir loks allar götur til Róm og hertóku borgina árið 410. Mistu þeir þar foringja sinn. Færðu Vestgotar sig þá til Spánar og settust þar að. Annar flokkur Tevtóna eru Vandalir. peir voru fyrir í Spáni, þá Vestgotar komu þangað, og hröktu Gotar þá burt. Vestgotar bygðu Spán í hundrað ár, en þá komu Múhameðsmenn með her á hend- ur þeim og sigruðu þá. Leifar Vandala og Vestgota urðu að miklu leyti stofn sá, er Spánverjar eiga rót að rekja til og mega þeir því tevtónskir teljast. Mikill fjöldi Gota staðnæmdist á ítalíu, og Lombarðar, sem var enn annar flokkur Tevtóna, lögðu undir sig norðurhluta ítalíu. Meiri- hluti ítala er kominn út af Gotum og Lombörðum og eru ftalir tevtónskir að mestu leyti. Voldugasti flokkur Tev- tóna voru Frankar. Höfðu þeir vaðið Rín-á og tekið sér bólfestu þar sem nú heitir Frakkland. Annar flokkur, er Búrgundar nefndist, settist að í suðausturhluta Frakk- lands. Frakkar eru að mestu leyti afkomendur gömlu Franka og Búrgunda, og því Tevtónar að uppruna. Til Englands fluttust forðum þrír kynflokkar og voru allir tevtónskir: Englar, Saxar og Jútar. Frumbyggjar þarlend- ir, er nefndust Bretar, höfðu átt fult í fangi að verjast á- rásum Pikta og Skota, er herjuðu landið norðan af Kale- doníu (Skotlandi). Fengu þeir því Engla og Saxa austan af Germaníu sér til hjálpar. Ráku þeir Pikta og Skota burt, en snerust síðan að Bretum sjálfum og lögðu alt Bret- land undir sig, nema fjallabygðina vestast, þar sem heitir Wales. Settust sumir Bretar þar að, en hinir flýðu suður á Gallíu og settust þar að, sem síðar var kallað Bretagne eftir þeim. Engil-Saxar réðu lögum og lofum á Englandi þar til nokkrum öldum síðar (1066), að Norðmandíu-menn brutu þá undir sig og blönduðu síðan blóði við þá. Norð- mandíu-menn voru tevtónskir sem hinir, afkomendur Göngu-Hrólfs og þeirra Norðmanna, sem með honum bygðu Norðmandíu á Frakklandi. Af þessu má sjá, að Englend-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.