Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1916, Síða 25

Sameiningin - 01.10.1916, Síða 25
247 Islenzka þjóSin á blómlegan akur í þessari bygö; eru þar rækt- uö blómin þau, sem vér eigum bezt, blóm trúar og tungu og þjóS- ernis. BRANDON. í>ar kom eg aS kveldi mánudagsins 24. Júli. Messa hafSi veriS auglýst og fólk kom saman í ísl. kirkjunni kl. 8 aS kveldi. NokkuS margt fólk var við kirkju; þrjú börn voru skírS. ÞaS heyrSi eg á fólki, aS þaS þráSi tiSari messur og meiri prestsþjónustu. Kirkian er lagleg og sunnudagsskóli er hér meS allgóöu lífi—aö sögn. BoSiS var mér heim til Ólafs Ólafssonar, ásamt flei'rum, er viö messu voru. Þar var veittur beini, en aö þvi loknu var fariS aö syngja. jHöfSu bæöi yngri og eldri hina mestu ánægju af. Skyldi annars fólk, sem kemur saman á hverjum helgum degi til sálmasöngs og guSsþjónustu, gera sér grein fyrir, hvers þeir fara á mis, sem sjaldan eSa aldrei kringumstæSanna vegna geta þaS? Nóttina, sem eg var í Brandon, gisti eg hjá Siguröi Bjarnasyni, smiö af ísafiröi; mætti eg þar ágætis-viStökum. Árla næsta dag hélt eg svo til Baldurs, en þangaS hafSi séra FriSrik Hallgrímsson boöiS mér aö koma. Eg dvaldi hjá séra FriSrik í tvær nætur í hinu bezta yfirlæti, en á daginn var eg á ferSinni meö séra FriSrik. Lætur hann “bíl” sinn þjóta yfir fjöll og firnindi, eg ætlaöi aö segja yfir hæSir og lautir, því fjöll eru ekki í Argyle, en undur er þar fallegt—þó fjöllin skorti. Eg var á sameinuöum fundi Bandalaganna fyrra kvöldiö. Þótti mér þar gott aS vera. Unga fólkiS v'ar glaölegt og frjálslegt, en þó alvörugefiS. Veitingar fóru fram aS afloknum fundi, en þar næst ýmsar skemtanir. Síöari daginn var aS kvöldinu samkoma í kirkjunni á Baldur; stóö. kvenfélagiö “ Baldursbrá” fyrir henni. Þar átti eg aS segja “eitthvaö”, en fór svo aS eg sagSi sitthvaS og sitt úr hverri áttinni. Þar gafst mér tækifæri á aS heyra séra Carl J. Olson. Þar flutti og séra FriSrik erindi. A|ö ræöuhöldum loknum fóru fram veitingar. Eiginlega voru þaö veizlur bæöi kvöldin. Ein aö þeim loknum fóru fram junsir leikir, sem bæöi yngri og eldri tóku þátt í, en áSur fólk færi heim- leiSis voru sungnir sálmar og bænarorS fram flutt; er þaS ein af eftirminnilegustu stundum lífs míns;—þaö er sælt aS minnast Drott- ins sameiginlega i bæn, en sérstaklega er þaö styrkjandi, aS finna til þess er andi bænarinnar og nærvera GuSs fyllir hjörtu hinna ungu. Árla næsta dag fór eg áleiöis til Winnipeg, ásamt þeim prest- unum séra Friörik og séra C. J. O. og Hallgrími syni séra Friöriks. Voru fjörugar samræSur og allgott samkomulag.

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.