Sameiningin

Ukioqatigiit

Sameiningin - 01.10.1916, Qupperneq 15

Sameiningin - 01.10.1916, Qupperneq 15
237 á veggnum, sem á að vera til minja um ein þessi viðskifti. Lúter var að þýða einn af sálmum Davíðs; hann var orðinn lémagna eftir langt og strangt erfiði, sjúkdóm og sult. pá reis upp fyrir framan hann ógurlegur og formlaus svip- ur, sem hann hélt vera þann vonda, kominn þarna til að banna sér að vinna. Lúter reis upp hvatlega, og bauð Satan birginn; henti blekbyttunni í svipinn, og hann hvarf. Bletturinn er enn við lýði, og þó skrítinn sé, er til minja um ýmsa hluti. Hver vikadrengur í lyfjabúð getur nú frætt oss um, hvað vofa þessi sé, frá sjónarmiði vísind- anna; en hjarta þess manns, sem þorir að bjóða helvíti sjálfu birginn, þegar það blasir við honum, getur ekki sýnt betri vott um hugprýði. Hluturinn, sem skelfir hann, er ekki á þessari jörð, eða undir henni.—Hugprýði! “Djöf- ullinn veit,” skrifar hann við eitt tækifæri, “að þetta geri eg ekki af því eg sé hræddur. Eg hefi séð og boðið birginn óteljandi djöflum.” (Georg hertogi í Leipzig, var mikill óvinur hans). “Georg hertogi er ekki á við einn djöful”— langt frá því að vera djöfull. “Ef eg þyrfti að fara til Leipzig, þá myndi eg ríða inn í Leipzig þó að það rigndi hertogum slíkum sem Georg þessi er, níu daga samfleytt.” Hvílíkt ógnarflóð af hertogum að ríða út í. Samt fara þeir hinir sömu algerlega vilt, sem ímynda sér, að hugrekki þessa manns hafi verið grimd, tóm of- stopafull óhlýðni og villimannleg þrákelkni, eins og margir halda. Langt frá því. pað er til óttaleysi, sem stafar af hugsunarleysi og tilfinningaleysi, eða af hatri og blindu æði. Vér metum ekki hugrekki tígrisdýrsins mikils. En með Lúter var þetta alt á annan veg; að ásaka hann urn tryldan æðisgang nær ekki nokkurri átt. H.j arta hans var viðkvæmnin sjálf, fult af meðaumkun og elsku, eins og hvert annað sannarlega hugprútt hjarta er í raun og veru. Tígrisdýriö flýr undan s t e r ka r i óvin—flýr; tígrisdýrið er ekki það, sem vér myndum kalla hugað, að eins grimt og tilfinningarlaust. Eg þekki fáa hluti, sem gera manni eins heitt um hjartað og þessi hjúfrunarhljóð tilfinning- anna, viðkvæm eins og barns eða móður, sem koma fram í þessu mikla og lítt kannaða hjarta Lúters. Svo hugheilar eru þessar tilfinningar, lausar við alla uppgerð, tilgerðar- lausar, og látnar í Ijós með svo litlu óþarfa útflúri eins og hreint vatn streymandi út frá kletti. Hvað var annars þessi örvænting og vonleysi um frelsun, er í æsku lá sem farg á huga hans, nema afleiðing tilfinningaríkustu hugs- ana, og lundar, sem var of viðkvæm og fíngerð? pannig fer oft fyrir mönnum, sem eru líkir veslings skáldinu Cowper. Manni, með litlum mannþekkjara-hæfileikum, myndi Lúter hafa sýnst huglítill og óframfærinn, og aðal-

x

Sameiningin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.