Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.10.1916, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.10.1916, Blaðsíða 11
233 En það, sem væri grundvallað á guðsorði, gæti hann með engu móti tekið til baka. Hvernig gat hannn það ? “Sannið mér, að eg hafi á röngu að standa með sönnunum heilagrar ritningar”—þannig lauk hanrt máli sínu — “eða, að öðrum kosti, með skýrum rökum heilbrigðrar skynsemi. öðruvísi get eg ekki afturkallað orð mín. pví að það er viðurhlutamikið, og ekki viturlegt, að gera nokkuð á móti samvizku sinni. Hér stend eg; get ekki annað. Guð hjálpi mér!” — petta var þýðingarmesta stundin í allri nýju sögunni. Hin enska hreintrúarstefna, hið enska þingbundna stjórnarfyrirkomulag, saga hins nýja heims, og ógrynnin öll af tveggja alda viðbui'ðum; stjórnarbylt- ingin franska, nútíðar-ástand allrar Evrópu—alt þetta á rót sína að rekja til þessarar stundar. Ef Lúter hefði á þessari stundu komið öðruvísi fram, þá hefði alt þetta farið öðruvísi. Evrópa beindi að honum þessari spurningu: Á eg alt af að sökkva dýpra og dýpra niður í ósanninda-foræði, fúla stöðupolla og hryllilegan svartadauða; eða á eg með tröllslegum umbrotum.að varpa frá mér ósannindafargi þessu, til þess ao eg læknist og lifi? Stórkostleg stríð, barátta allskonar og sundrung leiddi af siðbótinni, og heldur áfram þann dag í dag, og ekki sér enn fyrir endann á. Allmikið veður hefir út af þessu verið gert. Og satt er þao, að hryggilegt er til alls þessa að vita; en þegar öll kurl koma til grafar, hvaða sök á Lúter í þessu, eða málefni það, sem hann barðist fyrir? pað er undarlegur hugsunarháttur, sem kennir siðbótinni um alt þetta. pegar Herkúles veitti vatnsföllunum inn í fjós Ageasar konungs til að hreinsa þau, þá er vafalaust að meira en lítið uppþot hefir orðið inni þar; en eg held, að Herkúles hafi enga sök átt í þessu, heldur einhver annar! Siðbótin hlaut að hafa margt í för með sér, þegar hún kom, en siðbótin hlaut að koma. Öllum vafningum, sorgartöl- um og ásökunum páfa og málsaðila hans verður beinast svarað með þessu: í eitt skifti fyrir öll,—páfadómur yðar er ósannur orðinn. Hversu góður sem hann var, og hversu góður sem þér segið að hann sé, gerir minst til, vér höfum mist trú á honum; ljós anda vors, gefið oss af himnum til að ganga fram í, trúir honum ekki lengur. Vér viljum ekki trúa honum, ekki reyna það einu sinni,—vér þorum það ekki! Hann er ósannur; vér myndum svíkja gjafar- ann alls sannleika, ef vér svo mikið sem létumst trúa hon- um. Burtu með hann; í stað hans komi hvað sem vill; en við h a n n höfum vér ekkert meira saman að sælda!— Lúter og siðbót hans ber enga ábyrgð á stríðum; hinn ó- sanni tálvefur, sem neyddi hann til mótmæla, hann einn ber ábyrgðina. Lúter gerði ekkert annað en það, sem hver

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.