Sameiningin - 01.10.1916, Blaðsíða 22
244
fellur stirSnuð eik,
út um völl og víkur
væla stráin bleik.
óvæg hríðin eljar,
öskur stormsins hvín—
nú er hætt til heljar
hnígi lífsblóm mín.
Brautin fyllist fönnum,
færið þyngist ótt,
engum menskum mönnum
mér finst líft í nótt.
Eg hef vilst af vegi,
veit ei hvert eg fer;
ekkert Ijós eg eygi,
enginn til mín sér.—
Úti’ á eyðihjarni
ef í nótt eg dey,
faðir gæzkugjarni,
gleym mér dauðum ei.
I heimahögum.
pýðing hr. St. Guttormssonar á hinni víðfrægu ritgerð
Thomas Carlyles um Lúter, sem nú birtist í Sameining-
unni, verður óefað af mörgum lesin með ánægju. Sá þátt-
ur hinnar merkilegu bókar enska ritsnillingsins, hefir lengi
skipað bekk með því, sem ágætast er talið í enskum bók-
mentum.
------O-----
Söfnuðir kirkjufélags vors eru beðnir að gleyma ekki
samskotum til heimatrúboðs-þarfa kirkjufélagsins í sam-
bandi við minning siðbótarinnar nú um mánaðamótin.
pað starf þarfnast fjárframlaga frá öllum söfnuðunum og
vonandi verða þau svo rífleg, að ekki þurfi starfið að líða
fyrir fjárþurð.
—-----O-----
Tveir fslendingar eru við guðfræðanám í vetur, þeir
er búist er við að gerist kennimenn innan kirkjufélags vors.
Hr. Halldór Jónsson heldur námi sínu áfram við prestaskól-
ann í Chicago, og lýkur þar námi næsta vor. Hinn maður-
inn er hr. Adam porgrímsson, áður kennari og blaðstjóri á
íslandi. Hann er byrjaður á guðfræðanámi við presta-
skóla Pacific-sýnódunnar lútersku í Seattle og hefir í
hyggju að gerast prestur innan kirkjufélags vors.
i