Sameiningin - 01.08.1909, Blaðsíða 2
lýsa yfir því, að málgagn þess hafi farið rétt með stefnn
féiagsinsf Myndi annað dœmi finnast þess á byggðu
bóli, að félag sé ásakað fyrir það, þótt það á ársfundi
sínum segi til eða frá um það, bvort starfsmenn þess
eða málsvarar liafi farið rétt með umboð sitt? Það
hafði verið ráðizt á stefnu „Sam.“ Þingið átti að skera
úr því, hvort stefna málgagnsins væri réttmæt stefna
kirkjufélagsins, hvort málgagnið héldi fram þeirri
stefnu, sem því lmfði verið trúað fyrir og kirkjuþingið
vildi að það héldi fram, ellegar það ætti að skifta um
stefnu. Var ekki sjálfsagt, að þingið segði til um stefnu
blaðsins ? Átti ekki félagið sjálft að ráða stefnunni ?
Engum blandast víst hugr um það. Svo gjörði þingið
það, sagði: „Stefna ‘Sam.’ er lögmæt stefna kirkjufé-
lagsins.“ Þinginu datt ekki í hug að gjöra sjálft sig
eða stefnu ,,Sam.“ að „hæstarétti, sem Vestr-lslending-
ar eiga að lúta.“ Þingið biðr engan mann að hafa
sömu stefnu fremr en honum sýnist, en það biðr leyfis
tií að hafa sína stefnu og taka fram, liver hún sé.
Dœmi er til þess, að söfnuðr hefir með fundarsam-
þykkt lýst yfir því, að hann samþykkti stefnu prestsins
síns. Engum datt þó í hug að segja, að með því hefði
söfnuðrinn bœtt við sig nýrri trúarjátning, né úrskurð-
að, að prestrinn væri „óskeikull£< maðr, „hæstiréttr“
eða neitt þvílíkt. Söfnuðrinn lýsti yfir engu öðru en
því, að stefna prestsins væri réttmæt stefna safnaðarins.
Enginn munr er á yfirlýsing þeirri og þeirri yfirlýsing
kirkjuþingsins, að „Sameiningin“ hafi á liðnu ári hald-
ið fram þeirri stefnu, sem sé stefna kirkjufélagsins.
Ætlar nokkur maðr annars í alvöru að halda því
fram, að kirkjufélagið hafi ekki liaft bæði rétt og skyldu
til þess, að segja til um það á kirkjuþingi sínu, hvort
málgagn þess hafi farið rétt með stefnu félagsins?
Og líklega neitar enginn þinginu um rétt til þess að
segja, hver stefna sín sé. Og þá verðr ekki heldr þing-
inu neitað um rétt til að mótmæla hverju því, sem það
skoðar gagnstœtt stefnu sinni.
Ekkert annað en þetta tvennt gjörði nú kirkjuþing-
ið: tók fram stefnu sína og mótmælti árásum á hana.