Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.08.1909, Page 6

Sameiningin - 01.08.1909, Page 6
liðnu ári, sé réttmcet stefna Mrkjufélagsins, en mót- mœlir þeim árásum á þá stefnu, sem komið hafa fram innan kirkjufélagsins frá séra Friðrik J. Bergmann í tímariti hans, „Breiðablikum“. Eg get ekki skilið, hvernig nokkur óruglaðr maðr getr komizt að þeirri ályktan, að meiri hlutinn hafi með þessum ummælnm gjört yfirlýsing nm óskeikulleik „Sameiningarinnar“. Þó sé eg, að forsprakki minna hlutans hefir það fylgi, að tveir eða þrír fylgifiskar hans*) liafa gripið í strenginn og ritað í blöðin um þetta efni, samkvæmt því er hann vill vera láta. Lýsir það trú þeirra á það, að ekki þurfi að rannsaka það, sem for- sprakkinn segir. En ekki hafa þeir þó gjört neina form- lega yfirlýsing um óskeikulleik hans. Eg þykist nú hafa fœrt rök fyrir því, að meiri hlut- inn liafi ekki gjört yfirlýsing um óskeikulleik „Samein- ingarinnar“. Og um leið og það er sannað hrapar til grunna öll sú lirúga af ákærum, sem greinarhöfundrinn hefir tildrað ofan á þann ímyndaða hyrningarstein sinn. Þá hefir meiri hlutinn ekkert ofríkisverk framið. Ekkert gjört til þess að endrreisa rómverskt einokunar- vald í trúarefnum. Ekki fjölgað játningarritum kirkju- félagsins. Ekki svift nokkurn mann kristilegu liugs- anafrelsi — og þá eflaust ekki getað staðið „höggdofa og liikandi“ með ótta og iðran fyrir það, sem hann aldrei hafði gjört. En meiri hlutinn hefir lýst yfir því, að honum sé það alvara, að halda uppi þeirri kristindómsstefnu ó- breyttri, er kirkjufélagið hefir fylgt að undanförnu, samkvæmt þeim grundvallarlögum félagsins, er séra F. J. Bergmann og aðrir merkir og góðir menn hafa samið og komið í gildi. — Og meiri hlutinn hefir enn fremr skýlaust neitað um leyfi kirkjufélagsins til þess að kennimenn þess hafi rétt til að kenna hvað sem þeim *) Samber flœkjugreinina illyrtu eftir hr. George Peter- son í „Heimskringlu“ frá 12. Ág. og langlokuna í sama blatSi um úrgöngu-fundinn fræga á Garba.r eftir br. Hjálmar A. Bergmann. Ritst. „Sam.“

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.