Sameiningin - 01.08.1909, Page 10
170'
ungsmannsins í Kapernaum. Þeir höfðu sjálfsagt lilýtt
á samtal hans við Nikódemus. Þeir liöfðu skírt menn í
nafni hans. Þeir höfðu hlýtt á kenningar lians í Júdeu
og Galíleu. En þó liöfðu þeir enn sem komið var ekki
slegizt í stöðuga fylgd með honum. Þessir lærisveinar
höfðu leitazt við að skifta lífi sínu í tvennt. Hin jarð-
neska köllun þeirra var fiskimanns-iðnin; hin himneska
köllun þeirra var postula-embættið. Svo lengi sem þeir
reyndu að rœkja þær báðar, gafst þeirn hvortveggja
illa. Þeir voru lélegir fiskimenn og lélegir mannaveið-
arar. Orð drottins: „Héðan í frá skaltu menn veiða‘ ‘
sýna, að Pétr hafði ekki snúið mörgum áðr; og heil nótt
á sjó án nokkurs afla gefr oss liugboð um, að þeir hafa
ekki verið orðnir heppnir fiskimenn upp á síðkastið.
Þetta er bending til vor um að vera ekki óstöðugir, hvik-
ulir lærisveinar. Yér erum ekki allir kjörnir til post-
ula-embættis, og þurfum því ekki að yfirgefa jarðneskt
æfistarf vort; en vér eigum allir að vera sannir læri-
sveinar, og megum því ekki reyna að skifta lífi voru í
tvennt, með því að þjóna guði stundum, en mammoni
þess á milli, kærleikanum annað slagið, en eigingirninni
flestum stundum, guðrœkninni á sunnudögum, en heims-
elskunni liina dagana sex, frelsara vorum í orði, en
höfðingja þessa heims í verki. Nei, frelsari vor vill
enga hálfleiks-þjónustu; hann vill líf vort allt, hjarta
vort allt, hugskot vort allt, krafta vora alla, áhuga vorn
allan, elsku vora alla. Og vér getum allir veitt honum
það, hver sem stétt vor er eða staða í lífinu. Vér getum
þjónað honum í skrifstofunni, í lestrarlierberginu, á
verkstœðinu, í skurðinum, í þvottahúsinu, í eldaskálan-
um. Engin köllun er svo lítilmótleg, að vér getum ekki
gjört hana himneska, ef líf vort allt er ein stöðug leit
eftir ríki guðs og réttlæti hans. Hrottinn hefir umskap-
að hjarta hvers sannkristins manns, en sá, sem er
þannig vakinn, á síðan sjálfr að umskapa hið ytra líf sitt
að vilja drottins síns og frelsara, svo að hann geti sýnt
öðrum mönnum þá dýrð föðursins, sem hefir lýst upp sál
hans. Og knýttar hendr eru guði til dýrðar, ef sann-
kristið hjarta stjórnar þeim.