Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.08.1909, Side 12

Sameiningin - 01.08.1909, Side 12
172 er þá um að kenna nema sjálfum oss, ef vér viljum ekki ]júka upp fyrir honum ? Og nú komum vér að brennideplinum í sögunni allri. Það er trúarraunin, sem Pétr varð að ganga í gegn um. Iíún felst í orðum frelsarans: „Legg þú rit á djúpið, og leggið net yðar til fiskidráttar.‘ ‘ Pétr liafði áðr þreytt sig heila nótt, en ekki orðið var. ILann var hættr. Hann hafði gefizt upp. Vér vitum öl I, livernig árangrs- laust erviði þreytir bæði líkama og’ sál, og dregr úr manni allan kjark. Ekki liafði Pétr lieldr séð neitt kraftaverk þessu líkt áðr; og mannsandinn efast um flest, sem hann hefir ekki enn lært af reynslunni. Þó sigrar trúin hjá Pétri. Dauðþreyttr og niðrbeygðr treystir hann samt frelsara sínurn og leggr út á djúpið. Idér er fólginn afar mikilsverðr lærdómr fyrir livern þann, sem staðfesta vill líf sitt í Kristi. Hann þarf að ganga í gegn um einhverja trúarraun áðr. Allir kraft- ar mannsins þurfa að þreyta við einhver móttsöðuöfl. Enginn stvrkir vöðva sína nema hann reyni á þá. Eng- inn skerpir vitsmuni sína nema hann þreyti við vanda- samar ráðgátur. Engum fer fram í lieilagleik nema hann stríði við freistingar. Enginn lærir að treysta föður sínum, jarðneskum eða himneskum, nema einhvern tíma reyni á það traust. Og enginn verðr sanntrúaðr nema trú hans styrkist við eldraunir efasemdanna. Það er fyrir þessa sök, að skynsemistrúin gjörir út af við andlegan áhuga. Þá er burt liefir verið numið allt það, sem reynir á trú vora, þá liverfr trúin sjálf, alveg eins og sjónin hverfr, er ljósöldurnar skella ekki lengr á aug- anu. Ef mér væri boðin ókeypis kennsla við þá mennta- síofnun, þar sem eg þyrfti ekki að reyna neitt á sálar- krafta mína, þá væri það boð mér einskisvirði, af því eg myndi ekki læra neitt í þeim skóla. Ef mér væri boðnar allsnœgtir án erviðis, þá hlyti eg að hafna því boði, af því eg veit, að guð hefir ekki ætlað neinum manni slík lífskjör. Ef mér væri boðin þau trúarbrögð, sem skynsemin sæi ekki á blett eða hrukku, þá hlyti eg að hafna þeim trúarbrögðum, af því þau gæti hvorki verið sönn, né guðleg að uppruna. Ef mér væri boðin

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.