Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.08.1909, Blaðsíða 19

Sameiningin - 01.08.1909, Blaðsíða 19
179 um orðmn liafnað ? Einmitt „nú á tímum' ‘ liefir kristi- leg rannsókn ritninganna ekkert síðr stntt liinar eldri og sögulegu skoðanir heldr en en hinar nýju og óreyndu. Kristileg biblíurannsókn er vafalaust fullt svo mikil og vísindaleg hjá þeim, sem enn fylgja trú og játningum kirkjunnar, eins og hjá liinum, sem frá hafa vikið. Lít- um til hinnar miklu og göfugu lútersku kirkju hér í landi. Til liennar teljast um tólf milíónir manna hér í Bandaríkjunum. Engin kirkja er í meiri metum höfð en hún, og það ekki sízt fyrir þá sök, að menntaskólar hennar og frœðimenn þykja bera af öðrum. „Nú á tím- um“ hera nokkrir lúterskir frœðimenn af öllum öðrum hér í landi á sunnun svæðum biblíurannsóknanna, og ætti oss lúterskum mönnum að vera það ánœgjuefni. Lúterski prestrinn Hilpreeht, prófessor við Pennsyl- vania-háskólann, og samverkamaðr hans, dr. Clay, liafa áunnið sér frægðarorð um öll kristin lönd fyrir vísinda- legar rannsóknir á fornfrœðinni austrlenzku og kunn- áttu í biblíumálunum gömlu. Þessir og þeirn líkir rann- sóknarmenn „nú á tímum“ eru einbeittir andstœðingar nýju guðfrœðis stefnanna. Öll hin lúterska kirkja þessa lands, af öllum þjóðflokkum og tungumálum, fylg- ir hiklaust hinum gömlu og sögulegu kenningum biblí- una áhrœrandi. Allir prestaskólar kirkju vorrar í álfu þessarri, 23 talsins, fvlgja þeim kenningum. Hvert eitt og einasta lútersku tímaritanna hér í Yestrlieimi fylgir hinni gömlu stefnu. 1 engum söfnuði lúterskra manna, blaði eða skóla um þvert og endilangt þetta meginland hefir liin nýja niðrstaða rannsóknanna verið innhýst. Þér sjáið því, að þér ekki einungis slítið sambandi við kirkjufélag vort, heldr líka trúarlegu sambandi við gjör- valla lúterska kirkju í Vestrlieimi. Söfnuðr yðar hefir stigið spor, sem enginn annar lúterskr söfnuðr í öllum Bandaríkjunum hefir stigið, með því að aðhvllast trú- arskoðanir þær, er kirkjuþingið hafnaði og öll lútersk kirkja í Ameríku hafnar og farin er nú víða annarsstað- ar í heitninum að hrista af sér, þar sem þær skoðanir voru búnar að ryðja sér til rúms. Það tiltœki er söfn- uðinum auðvitað í alla staði heimilt, hafi hann verið bú-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.