Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.02.1910, Side 27

Sameiningin - 01.02.1910, Side 27
395 !í œföir og kunna að verki sínu.“ ')l „Ertu skipinu áðr ókunnugr?“ „Eg sé það nú í fyrsta sinni, og enn veit eg ekki, hvort eg þekki nokkurn persónulega, sem á því er.“ ,.Er það gott?“ „ÞaS stendr nokkurn veginn á sama. Vér sjómenn kynnumst hver öðrum fljótt. Skyndileg hætta verðr til þess að vekja hjá oss ýmist velvild eða óvild.“ Skipið var eitt þeirra, er nefnd voru naves liburnicac — Iangt og mjótt, risti grunnt, og var að öllu svo í lagi að orðið gæti sem hraðskreiðast og bezt í meðförum. Kinn- ungrinn var fagr; frá honum neðst gusaðist upp vatns- stroka er skipið brunaði áfram, og skvettist yfir allan fram- stafninn, sem reis upp, yndislega bogadreginn, tvær mann- hæðir upp yfir þilfariö. í bugðum skipshliðanna voru myndir af Tritonum, sem blésu á skeljar. Fyrir ne'ðan kinnunginn var skipstrjónan — rostrum—, og var hún fest við kjölinn, en skagaði fram fyrir neðan vatnsbrún; tœki þaö var allt úr tré, en járnslegið til styrkingar, og er á bardaga stóð, var það notað til að stanga með skip óvin- anna. Frá kinnungnum lá eftir endilangri skipshliöinni hvorri um sig einskonar borði sterklegr, og afmarkaði hann skotvirkin, sem búið var um af smekkvísi mikilli; fyrir neðan borSana voru smugur þær, sem árarnar léku í; þau áraop voru í þrem röSum, hvert um sig huliS ábreiSu úr nautshúS, sextiu á hvora hliS. Kallarastafir —■ caducei — hölluSust upp aS hinum háreista framstafni, og voru smíS- ar þær til mikillar prýSi. KaSlar tveir miklir lágu um þveran kinnunginn, og á þilfarinu framanverSu var komiS fyrir akkerum tveim. ÚtbúnaSr skipsins hiS efra var mjög einfaldr, og benti þaS til þess, aS þaS, sepi skipshöfnin einkum treysti á, voru árarnar. Litlu framar en í skipinu miSju stóS siglutré, sem haldiS var föstu meS stögum fram og aftr, og til hliSa meS köSlunum í reiSanum, er festir voru í hringi á skot- virkjunum innanverSum. ReiSinn var eins og þurfti til þess aS haga mætti til einu segli stóru ferhyrndu, ásamt ránni, sem seglinu hélt uppi. Uppyfir skotvirkinu mátti sjá inn á þilfariS. Þeir félagar, sem staddir voru á hafnargarSinum, sáu aS eins einn mann þaSan, aS undanteknum hásetum þeim, er rifaS höfSu segliS og enn töfSu viS upp á ránni; meS hjálm á höfSi og skjöld á brjósti stóS hann viS fram- stafninn. ÁrablöSin eitt hundraS og tuttugu aS tölu voru úr eik, og var þeim haldiS hvítum og skínandi meS vikrkolum, auk A þess sem þau sí og æ voru aS skolast í sjávaröldunum; ^

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.